þriðjudagur, janúar 10, 2006

úff.. dagurinn byrjaði með hjartastoppi í allaveganna 1 mínútu þegar einn parísarbúinn fór undir lestina til að ná í eitthvað sem dóttir hans hennti/missti undir lestina og gargaði svo þegar hann ætlaði ekki að ná í hlutinn.. svo hann fór undir lestina og bjargaði pelanum á meðan ég var í hjartastoppi... þar sem lestarnar stoppa ekki svo lengi á hverjum brautarpalli..

Annars er dagurinn ótrúlega fljótur að líða... Vakna kukkan 6:45 til að vera mætt í vinnuna klukkan 9! og svo unnið þar til 18 um daginn og þá tekur rúmlega klukkutíma að koma sér heim aftur..garg..

Keypti mér lestarmiðann vegna ferðarinnar til frönsku alpana :) .. ohh. ég hlakka svo til.... já nei...alveg óþarfi að vera með jólalög á heilanum.

Keypti mér sæng sem og sængurföt í gær..þetta er allt að koma. Er að strauja fötin núna þar sem þau eru ennþá rök og minn alveg að fara að schlafe eða dormir eins og sagt er í a la francinu.

bonne nuit

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home