Helgin :)
Kvarta ekki. Fékk yndislegt veður yfir helgina, sól og blíða þótt loftið væri svalt.Stofnaði bankareikning :) nú get ég aftur farið að nota tékkahefti.. jibbí.. mitt uppáhald! Tékkheftið blívar nefninlega í hinu fagra frakklandi. Þetta veður örugglega fínt þegar mér tekst að skrifa ávísanirnar án stórkostlegra villna.
Fór í afmæli á laugardagskvöldið hjá einum tónlistarsnillingnum. Hann vann áhugamannamótið á piano í Frakklandi á árinu 2005. Virðist enginn áhugamaður.. þar sem hann spilar m.a. Rachmaninov eins og að drekka vatn. Hvernig fer fólk að þessu. Hann er með mastersgráðu í verkfræði og hreint út sagt ótrúlegur á pianóið. Ég hustaði á hann í byrjun desember þegar ég kom í viku til Parísar. Hann var þá að æfa sig fyrir tónleikana sem hann átti að verða með þann 15. desember með simfóníuhljómsveitinni. Ég skemmti mér vel við að hlusta á verkin hjá honum. Alveg greinilegt að Celine Dion með laginu "all by myself" stal hluta af einu verkinu hjá Rachmaninov. Er komin í ákveðið hugarástand..nýt þess að hlusta á hverja nótu.. og svo kemur miðkaflinn.. og heilinn byrjar.."all by myself"" c'est horrible!
Afmælið var annars notalegt.. Svona kaffistemming um kvöldið. Allir að rabba saman. Mamman að snúast í kringum alla og bjóða meir. Hún búin að baka og elda heilu tonnin af mat og kökum.
Sunnudagurinn var rólegur.. Fórum í Val d'Europe í outlet búðir þar og mollið.. Allir virtust hafa sömu hugmynd.. þar sem við vorum hálf stopp á leiðinni og hörmungin ein að finna stæði. Hingsóluðum í allaveganna 30 min á bílastæðinu aðeins til að finna eitt slíkt. En ótrúlegt þá tókst mér að kaupa mér gallabuxur sem og sængurföt á rúmið :) minn því ánægður.
@+

3 Comments:
afmæli... kaka! Mig langar í köööku!
Knús og kossar, sakna þíns!! Biddí
Blogga meira, blogga meira! Við söknum þín!!
ávísunaheftin blíva sko í Ameríkunni líka. Var lengi að venjast þessu en það kemur á endanum. Fyndið hvað heimurinn er langt á eftir okkur Íslendingum, lol!!
Hafðu það gott sæta.....
Knús,
Sigurborg
Skrifa ummæli
<< Home