þriðjudagur, janúar 10, 2006

Og komin til Parísar!

Og ég er komin til Parísar, voila! Nú þarf ég að muna alla frönsku frasana sem ég hef lært um tíðina og gjöra svo vel og nota þá, ekki seinna vænna.

Ferðin gekk vel út fyrir utan að töskurnar mínar týndust í tollinum í heila 3 kvíðarfulla tíma. Við komumst því ekki heim fyrr en seint um daginn.. og þá vorum við systir mín hreinlega búnar á því, ég hálf sofnaði í bílnum á leiðinni og svo láum við báðar eins og skata um kvöldið fyrir framan sjónvarpið og gátum okkur hvergi hreyft.

Laugardagurinn 7. janúar var töluvert skárri. Fórum með allan farangurinn minn í íbúðina sem ég mun hafa næstu tvo mánuði. Alveg ágætisíbúð, c.a. 40 fm og er í Pigale hverfinu :) svona hálf súrealískt að næstum næsta hús við mig er upplýst með stórum stöfum "Sexdrome".. jep svona er aðal gatan í Pigale í hnotskurn.

Alltaf er að koma meira og meira í ljós hverju ég gleymdi heima! Fyrst var það HLEÐSLUTÆKIÐ á tölvunni minni, sem er náttúrulega það versta. Er eiginlega alveg vonlaus án tölvunnar. Fórum á laugardeginum í Fnac til að kaupa eitt slíkt en þar var aðeins til Universal hleðslut. hmmm... jæja.. það ætti alveg að vera í lagi héldum við.. mais.. no! Sony vill ekkert svona Universal drasl.. þannig að nú þarf ég að finna the one and only store sem er að selja varahluti í Sony.. og auðvitað loka allar búir klukkan 19:00 á kvöldin og ég ekki komin úr vinnu fyrr en þá!! lovele..

Vinnan vinnan :) Byrjaði svona rosalega vel. Komst ekki í vinnuna fyrr en 10:30 þrátt fyrir góða viðleitni að minni hálfu að vakna klukkan 6:45. Ég var búin að kortleggja nákvæmlega hvar vinnan er staðsett með vefkorti.. en svo kom í ljós að helv.. kortið er gjörsamlega rangt.. og því mín búin að fara út á rangri lestarstöð sem og ganga heilu kílómetrana. Vinnan er þó alveg í lagi, gott andrúmsloft og allir að vilja gerðir að aðstoða.

to be continued ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home