föstudagur, janúar 13, 2006

Tónleikar, heita vatnið og þjófar!

Fór á notalega,jass/lyric tónleika í gær þar sem systir mín spilaði svona glæsilega með þremur öðrum. Ein spilar á rafmagnspiano og syngur, einn var á kontrabassa, systa á klarinette og svo annar söngvari. Efast ekki um að ég eigi eftir að sjá þau aftur.

Eins og við íslendingarnir erum vanir getum við tekið sturtu í marga klukkutíma og enn er nóg af heitu vatni. Þessu er ekki alveg eins farið í Frakklandi. Ég fór í mína fyrstu sturtu í nýju íbúðinni og auðvitað kláraðist heita vatnið! Varð að þvo hárið með ísköldu vatni!! Nb. ég var að passa mig, en greinilega ekki nóg..þannig að aðeins 5 min sturta max og þá er þetta í lagi, great!

Alltaf verður maður að passa þann farangur sem maður heldur á sem og sérstaklega gsm símana sína. Var rétt komin inn í lestina í gærkvöldi þegar þrír menn spretta fram hjá mér. Sá fyrsti hélt á síma í hendinni og greinilega að flýja hina sem voru frekar reiðir í framan og öskrandi á eftir honum, svo heyrðist mikill kliður í lestinni þegar allir muldruðu..ahh...le portable og svo hálfgerður hlátur.. hmm..ég get ekki alveg sagt að ég myndi hlæja ef ég myndi missa minn síma.

Ég þarf eitthvað að athuga með stillinguna á klukkunni hjá mér á bloggsíðunni.. ég er ekki að skrifa á nóttunni :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home