sunnudagur, janúar 29, 2006

Tónleikar, þverflauta og skíðabuxur.

Ég ætlaði á íslensku nuit curieuse-hot pots tónleikana sem haldnir voru á Ferme du Buission í Scéne Nationale de Marne-la-Vallée í gærkvöldi eða laugardagskvöldið en hafði verið svo sein að panta miða að allt var uppselt þegar minn hringdi. Systir mín var þó búin að fá miða þar sem góður vinur hennar hafði verið með fyrirhyggju og keypt miða handa sér einn auka! Það voru þó aðrir tónleikar sem mig langaði allaveganna að kíkja á sem voru einnig íslenskir og voru með fyrrum Gus Gus og Nýdönsk söngvaranum Daníel Ágúst og einnig var Kira Kira að spila, en þessir tónleikar voru í 5 min. göngufæri frá minni. Ég skellti mér þangað með samstarfskonu minni og skemmti mér hið konunglega. Tónlistin var róleg hjá báðum. Daniel minnti mig á Johnny Depp í Edward Scissorhands. Þó var hann ekki með nein skæri á höndunum eða með hárið út um allt. Hann var samt kominn með millisítt hár, í svörtum klæðum með stórum hálskraga. Tónlistin hjá honum var mjúk og var hann með strengjakvartett að spila með sér (þau eru víst öll búsett í Belgiu einn af þeim íslendingur)

Ég gerðist sá snillingur að spyrja einn aðilann hvort hann væri ekki íslendingur. Var reyndar að spyrja fy
rir samstarfskonu mína þar sem hún var nokkuð viss um að hún kannaðist við hann frá Selfossi, taldi líklegt að hann væri kennari þar. Ég fer því upp að honum og spyr...hann segir jú jú það er rétt (enda sást það langar leiðir, alveg ekta íslenskt útlit)en ég var ekki gáfaðri en svo að þekkja ekki íslenska sendiherrann í París því þetta var hann!
Auðvitað átti maður að leggja tvo og tvo saman þar sem icelandair og sendiráð íslands í parís styrktu þessa tónleika. En svona er þetta.. alltaf jafn ljóshærð.

Tónleikarnir voru búnir frekar snemma eða rétt eftir 10 um kvöldið og þá var boðið upp á miða á skemmtiatriðin í Marne-la-Vallée, minn ákvað því að skella sér þangað :)

Þar var töluvert fjör, alls konar skemmtiatriði í gangi og heitir pottar út um allt fyrir þá sem vildu :)

Boðið var upp á smá mat á staðnum.. einhver skelfilegur fiskur sem ég er efast um að hafi verið íslenskur! Annars var maður það svangur það var látið sig hafa það að eta matinn.. svona að mestu leyti.

Partýið var svo búið um fjögur og þá var farið í bæinn. Það tók auðvitað klukkutíma og ekki því farið í rúmið fyrr en eftir fimm um morguninn.. sem sagt svona venjulegur tími fyrir íslenskt djamm :)

Ég fór auðvitað að rölta um París á laugardeginum og gerði eins og Biddí vinkona, keypti mér skíðabuxur fyrir alpaferðina mína í mars :D Hvernig er það annars heima.. er ekki snjórinn farinn í fjöllunum?

Ég fór einnig og keypti mér þverflautuna sem mig er búið að langa að kaupa og fékk í jólagjöf frá foreldrum mínum :D Er rosalega ánægð með hana og búin að spila töluvert á hana.. fyrst svona meira að finna allan skalann ehem.. var ekki alveg að muna hvar esin og -isin voru... ég er því búin að vera að ergja nágrannana svolítið.

Annars enn og aftur.. vikan búin að líða ótrúlega fljótt.. Búin að vera að skoða íbúðir þar sem ég þarf á því að halda í byrjun mars. Mér sýnir á öllu að ég fái kannski 20 fm fyrir 650 eur.... og mig langar að vera með allaveganna 40 fm! ég þarf því að leita heldur lengur og aðeins að athuga með budgetið sem og hvar ég vil leigja.. alveg endalaus leit sýnir mér. Looking forward yeahh right!

og já ég veit.. ég þarf að skrifa oftar en einu sinni í viku..

Knús og kossar til ykkar allra.. Það er ekkert smá gaman að fá komment :)

2 Comments:

At 1:41 f.h., janúar 30, 2006, Blogger Sigurborg said...

hehe.. LJÓSKA!! Nei segi svona... þín er ágæt.. þú veist það.
Miss you an bunch

 
At 10:25 e.h., febrúar 01, 2006, Blogger Asthi said...

humm..já ég held að ímyndin sé eyðilögð og framhaldssagan líka.. þó sendiherrann sé ekki kominn á grafarbakkann né fann ég pípulykt af honum :)

 

Skrifa ummæli

<< Home