Tvær vikur!
Alltaf finnst mér tíminn líða hraðar og hraðar. Hef víst verið hér í tvær vikur og líður eins og ég hafi rétt í þessu verið að koma.Síðasta vika leið ótrúlega hratt. Það hefur svo sem ekki mikið gerst. Smakkaði í fyrsta skiptið pule... sem eru litlir kolkrabbar.. alveg skelfilega ljótir og frekar seigir og bragðlausir að auki, en alveg gaman að smakka eitthvað nýtt.
Skemmtileg stemming myndast hjá vinnufélögunum þegar þeir koma saman í hádeginu og elda saman eitthvað gómsætt :)
Ég er líklegast búin að finna mér tungumála vin :) við tölum saman íslensku í smá tíma, návkæmlega ÍSLENSKU, og svo reynum við að babbla eitthvað á frönsku. Maðurinn hefur víst mikinn áhuga á íslandi og íslenskri tungu og hefur lært hana greinilega eitthvað áður.
Annars eru tvennir tónleikar sem mig langar að fara á í augnablikinu. Gus gus er að spila 28. janúar að mig minnir hér í Pigale og svo er Ampop að spila 3. febrúar einnig í París. Held það verði dúndur stemming.
Ég fór afmæli til dóttur vinkonu systur minnar.. alls staðar treður maður sér inn í von um að fá kökur :) Litla rúsínan orðin 3 ára og algjör prinsessa.
Veðrið um helgina var hreint yndislegt! Sól og ferskt loft. Fór að rölta um í skóginum í Vincennes rétt út fyrir París. Greinilegt að nokkrir búa í skóginum, það virðist þó notalegra heldur en að sofa á metro stöðunum eins og margt útigangsfólkið gerir.
Fór út um allt í París á laugardeginum. Fann aveda búðina í París, í 7. hverfi.. svolítið skondið.. ekkert kassakerfi í búðinni heldur skrifaði eldri kona söluna á miða og hvað hvert stykki kostaði og lagði það svo saman í huganum.. og ég hugaði aðeins.. er það hægt ennþá :) skoðaði skíðaföt í 6. hverfi nálægt Sorbonne, búið var að benda mér á að skoða í ákveðinni búð sem sérhæfir sig í fjallafötum svo ég fer þangað í von um að hitta vin minn í búðinni en þegar ég kem þá er þetta ekki aðeins ein búð heldur gzilljón búðir allar með sama nafninu á öllum götuhornum á nokkrum hæðum... garg!!
Skoðaði þverflautur, bæði notaðar og nýjar í tónlistarbúðargötunni eða Rue de Rome. Ég hugsa að ég sé búin að ákveða mig að fá mér Yamaha 281 týpuna af þverflautu.. lítur vel út, virðist sollid og ekki of dýr :)
Byrjuð á 4 seriunni af 24 :) horfi á 1-2 þætti áður en ég fer að sofa.. gríðarlega spennandi. Búin að bíða eftir að sjá seriuna í marga mánuði.
Einnig er ég búin að torga 3 bókum síðan ég kom og þær aðeins lesnar þegar ég er á leiðinni í vinnu eða úr vinnu. Með þessu áframhaldi á ég eftir að lesa rúmlega 60 bækur yfir árið :) helv.. fínt!
Og svo er helgin búin og næsta vika byrjuð..

1 Comments:
gaman að heyra í þér sæta. Væri inn á yahoo núna ef ég væri ekki með dótturina í fanginu.
Knús,
Sigurborg
ps... Mæja vissi ekkert um bloggið þitt
Skrifa ummæli
<< Home