Afrískt tónlist og fl.
Ég fór á skemmtilegan stað í gærkvöldi þar sem vinur systu var að spila með bandinu sínu. Strákarnir spiluðu allir afríska tónlist á bongótrommur og tvær stúlkur sem sungu og dönsuðu afríska dansa með :) :) þvílík snilld vægast sagt.. Ég er alveg á því að fá mér eina svona trommu..alveg meiriháttar útrás að lemmja á þær :D Ég á alveg eftir að fara á fleiri svona kvöld.Það var nú samt eins og nokkrir höfðu verið nýkomnir frá Afríku og höfðu aldrei séð ljóshærðar stúlkur áður :)
Annars er minn búinn að vera heima í dag..með hor og slef og skósíða handleggi (hvaðan kemur það eiginlega) Þarf að fara að redda mér einum sem sér um mig í veikindum :)
Ég átti eftir að láta vita að ég er nú stoltur eigandi af frönsku bankakorti! jessory bob og búin að nota það meira að segja tvisvar.. Fyrsta færslan var auðvitað á bar.. hvar annarsstastaðar :) Fékk mér stóran bjór sem kostaði mig heilar 8 EUR!!! dísús.. og Reykjavík var ofar en París yfir dýru borgir heims! Annars er mun ódýrara að kaupa í matinn hér. Stundum finnst mér ég búin að kaupa alveg heilan helling en þarf svo aðeins að borga 30 EUR :)
Mér var gefin afmælis- og jólagjöf um helgina :) Fékk fallega bók um franska hesta. Minn átti alveg ekki von á þessari gjöf og þótti vænt um.
jæja.. orkan víst búin..tími til að fara að sofa :) góða nótt.

3 Comments:
Hæ skvís,
ég var bara að fatta þessa frábæru síðu þína, verð að setja hana í favorites hjá mér! :) Gott að heyra hvað gengur vel í París en augbrúnirnar mínar eru ekki eins sáttar!! :)
Að vísu á ég frábæra mágkonu sem ætlar að redda mér en ég hef ekki enn þorað til hennar, er svo hrædd um að hún sé ekki sami snillinn og þú!! ;)
Skemmtu þér ýkt vel úti og vertu dugleg að blogga!
hver gaf þínum svona flotta jólagjöf. Og já til hamingju með franska bankakortið!!!
Knús og kossar
Sælar,
Þú þarft ekki að hafa áhyggur Inga, mákonan þín á ekki eftir að klúðra neinu..ekki hægt með þínar augabrúnir ;)
Fékk gjöfina fá Collette, móður Christophe. Get ekki neitað því að minn var svolítið hissa :)
Skrifa ummæli
<< Home