mánudagur, febrúar 13, 2006

Íbúðarheimsóknir

Annars var síðasta vika skemmtileg. Fór í nokkrar heimsóknir yfir vikuna og helgina til að skoða íbúðir. Fór til eins sem var töluvert mikið fyrir utan París, of mikið. Þurfti að ganga í heilar 20 min eftir lestina. Þá kom ég að niðurníttu húsi en ég komst ekki í gegnum hliðið, alveg sama hvernig ég reyndi. Eftir stutta stund kom Bernard út, 55 ára karlmaður, virkar þú miklu eldri, 150 cm á hæð og svipaður á breidd. Hlær mikið og talar látlaust og engin enska. Ég sem sé reyni að bögglast á frönsku og hann babblar og babblar. Sýnir mér húsið, sem lítur ekkert rosalega vel út og herbergið sem ég átti að fá var algjör horror, hann var líklegast eitthvað að vinna í því herbergi, hálft klósett í herberginu og drasl út um allt. Tvær aðrar stúlkur leigja hjá honum og ég hefði verið sú þriðja. Hann bauð mér eitthvað að drekka og sagði einnig að ef ég vildi þá gæti ég sofið þarna um nóttina. Meira að segja mætti ég fara í sturtu líka. Ég þakkaði pent fyrir og sagðist þurfa að fara heim, skipta um föt og svona fyrir morgundaginn.. Hann bauð mér þá að þvo fötin um kvöldið og þurrka þau yfir nóttina.. tíhí.. hann var mjög svolítið skondinn og ljúfur.. Sýndi mér myndir hvernig húsið væri á sumrin umvafið blómum. Ég þakkaði svo pent fyrir og kvaddi.

Ég fór nú einnig í venjulegar heimsóknir, þæginlegir leigjendur en herbergið þá frekar lítið eða aðstaðan ekki nægjanlega góð miðað við verðið. Einn aðilinn var 40. karlmaður. Sýndi ágætis íbúð en sagði svo í endann hann á 2 börn sem koma aðra hvora helgi og svo kærustu sem flytur líklegast inn í apríl!... ehhhh.. takk en nei takk.. Ég er töluvert ánægð með að vera komin með íbúð og þurfa ekki að vinna í þessu mikið meir :)

Ég sem sé mun búa í Pigalle þar sem ég er búin að vera síðan í Janúar, íbúð sem systir mín reddaði mér. Íbúð vinkonu hennar en hún er í Mecixo sem stendur og kemur aftur í byrjun mars.

Ég mun því flytja til systu í byrjun mars í nokkrar vikur áður en ég flyt í nýju íbúðina hjá Adrian.

:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home