Franskir strákar.
Ein bað mig um að koma með lýsingar á frönskum strákum eða fransbrauðunum. Ég er búin að sjá fullt af myndarlegum strákum og meira að segja nægjanlega háum einnig, en þeir eru annað hvort að hlaupa og ná lestinni eða eru að stíga út úr henni og mín á leiðinni inn :) Ekki bankar maður í öxlina á viðkomandi og gefur honum númerið sitt, eða hvað??.. en svo á hinn boginn ef maður gerir ekkert þá sér maður í 99% tilvika manninn ekki aftur :) Allaveganna dökkhærðir karlmenn með brún augu og vel vaxnir er alveg nóg af hérna úti, flestir þeirra eru í "gay" hlutanum á París.. og því margir "look but don't touch" gæjar. Ég er þó viss um að hægt sé að nálgast einhvern þeirra einn daginn :) Minn fyrrverandi spurði mig fyrir nokkrum dögum hvort ég ætlaði að vera ein á meðan ég væri hérna úti... ehhh.. svolítið skondin spurning.. en ég geri þó ekki ráð fyrir að vera ein í þessi 3-5 ár sem ég verð hérna, þá væri ég alveg mygluð. Enda er búið að skipa mér af fjármálaráðgjafanum hjá fyrirtækinu sem ég er að vinna hjá að fá mér franskan kærasta sem fyrst! Hann var reyndar að hugsa um þetta vegna tungumálakunnáttunnar minnar. Finna mér einhvern franskan sem kann helst enga ensku! Þá verð ég fljótust að læra frönskuna vel segir hann. hmm.. jæja.. ég skoða þetta mál.. Reyndar finnst honum svolítið skondið að ég sé að fara að leigja með manni og spurði mig strax hvort hann væri myndarlegur, var alveg viss um að eitthvað myndi nú gerast á milli okkar. Reyndar minntist minn fyrrverandi á þetta einnig, Ehem.. ég er nú ekki sammála þessu :) enda ætti C. að vita betur en margir aðrir að ekki þarf samband að verða þótt bæði kynin leigja saman!
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home