Heimsóknin :D
Einhvernveginn tekst mér að skrifa aðeins vikufréttir. Vikan þýtur framhjá og ég á í erfiðleikum með að fylgja eftir. Annars ætla ég ekki að vera með neinn ljóðaleik, sökka frekar feitt í honum, annað en Ása Marin vinkona mín sem skrifar virkilega skemmtileg ljóð og texta, af hverju fékk minn ekki þessa náðargáfu. Jæja, ég get gert skattframtöl í staðinn :)Minn á svo yndislega vini. Gunna var svo þvílíkt sæt að koma í heimsókn til minnar í viku. Endalaust gaman að fá hana og minn saknar hennar sárt. Ég fékk endalaust hárfikt og gat sagt "honey I'm home" þegar ég kom þjótandi úr vinnunni. Minn þurfti nefninlega að vinna frá mánudegi til miðvikudags en fékk frí á fimmtudeginum og föstudeginum til þess að skoða París með henni sem og fylgja henni á flugvöllinn :)
Ég sótti hana á Laugardeginum, greyið alveg úrvinda út þreytu. Fór með hana heim til að slaka aðeins á eftir ferðina. Um kvöldið fórum við svo út að borða á grískan veitingastað hjá Saint Michel. Þar vorum við beðnar ítrekað um að dansa fyrir borðgesti og á endanum stóðum við upp og létum okkur hafa það. Teknar voru myndir af okkur bak og fyrir, þar sem líkegast hafði ekki sést svona tvein amazon kvenmenn inni á þeirra stað. Þjónarnir allir virkilega glaðir og dansandi allan tíman og einn starfsmaður í starfi við að dansa í miðjunni. Við fengum vin fyrir hvað við vorum yndislegar að stíga nokkur amazon dansspor. Einnig vildi þjóninn fá okkur næsta kvöld að dansa, við fengjum kaffisopa frítt með :) við þökkuðum auðvitað pent fyrir og sögðum hvert veit!
Við ákváðum að fá okkur ekki desert þarna heldur fara á eitthvert kaffihúsið.
Þegar við báðum þjóninn á kaffihúsinu um desert þá bauð hann okkur sig og það í thong-i :) annar var hann mjög almennilegur og kom okkur oft að skellihlæja með fíflalátunum í sér.
Á sunnudeginum ringri heil ósköp. Við fórum á útimarkað í St. Quain þar sem endalaust var af antíkmunum. Mjög gaman að skoða þetta...en svo sem ekki mikið keypt. Við komum heim um kvöldið alveg dauðuppgefnar og ákváðum að fara á indverskan veitingastað sem er rétt mjög nálægt íbúðinni þar sem ég er í Pigalle. Veitingastaðurinn er mjög flottur og maturinn var rosalega góður. Það skondna var aðeins að ef horft var út þá stóð með stórum stöfum SEXODROME á byggingunni á móti. Ég held ég sé búin að segja það áður en það er alveg krökt af kynlífsbúllum þar sem ég bý í augnablikinu. Við fórum saddar og ánægðar heim um kvöldið og þjónarnir höfðu einnig keppst við að gera okkur ánægðar og vildu endilega fá okkur aftur næsta kvöld.
Mánudag, þriðjudag og miðvikudag var ég að vinna á daginn og fórum við svo út að labba á kvöldin. Reyndum að fara á helstu staðina, Sacre Ceur (og útsýnið yfir París) , Montmartre (listamannahæðin) , Effelturninn, Operuna, Printemps, Gallery Lafiette (og á útsýnispallinn þar uppi á), Champse Elysée og Sigurbogann. Alexander III brúnna. Löbbuðum meðfram Signu og fórum í neðanjarðar mollið á Les Halles. En það er samt alveg fullt sem við náðum ekki að sjá því miður.
Fimmtudagurinn var notaður í að skoða betur Gallery Lafietter sem og Printemps. Við misstum okkur svo alveg í kaupum á frönskum undirfötum, þau eru náttúrulega rosalega flott, algjörir konfektmolar.
Um kvöldið var mikill vilji fyrir að fara frekar fínt út að borða. Hún langaði að bjóða mér eitthvað sætt. Minn auðvitað þvílíkt ánægður með það :) Ég fór því og skoðaði Parísarbókinar mína og við byrjuðum á að hringja í nokkra veitingastaði um klukkan 19 á fimmtudeginu.. og auðvitað voru margir fullpantaðir. En svo var einn með laust borð fyrir tvo, ekkert mál :D Við náttúrulega rosalega ánægðar og gerðum okkur til. Ætluðum að vera komnar þangar klukkan níu um kvöldið. Við vorum rosalega spenntar.. hvernig veitingastaður þetta væri, vorum ekki alveg vissar og hlökkuðum til að sjá hvernig hann væri. Við vissum að hann héti L'espadon og væri með franskri matargerð og frekar dýr.
Við vissum þó ekki að þetta væri á Hótel Ritz .. ehemm..þvílíkur lúksus.. verð að hafa það í sér bloggi :D enda minn búinn að skrifa endalaust.. alveg takmörk fyrir því hvað hver og einn nennir að lesa lengi :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home