föstudagur, febrúar 17, 2006

Icelandair

Alveg stórfurðulegt. Guðrún, vinkona mín sem er að koma á morgun keypti flugmiðann í gær, hún fór fyrst á netið og sá flug á aðeins 23þ ísl. 15 min seinna þegar hún ætlar að kaupa flugið þá er flugmiðinn kominn upp í 33þ eða 40.900 með sköttum. Helv.. helv.. hún hringir í Icelandair og spyr af hverju og þeir segja að allt sé að verða uppselt og því verðið búið að hækka.. Jæja hún lætur sig því hafa það og kaupir miðann! Í dag var ég að kíkja á netið og getið hvað.. flugmiðinn kominn í 20.900 eða 27.900 með sköttum. Auðvitað læt ég Gunnu vita, hún hringir í flugfélagið og við getum gert breytingar sem betur fer, hún fær því flugið á endanum á 27.900 m/sköttum.. fewhh.. :D jæja.. þar sem hún er búin að "græða" svona hellings pening þá getur hún eytt meiru í a la París :) gvööð hvað það verður gaman..

2 Comments:

At 10:17 e.h., febrúar 17, 2006, Blogger Sigurborg said...

mín sko geggjaðslega öfundsjúk!!! Langar miklu meira að vera í París með þinni en hérna í USA núna sko.....en við sjáumst samt eftir 6 vikur :o) Hlakka svo til að koma heim og sjá alla sem ég hitti ekki síðast (that is you my friend)
Lovja
me

 
At 11:52 f.h., febrúar 18, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

góða skemmtun um helgina... þið tvær eigið eftir að hafa það konunglegt! Væri alveg til í að vera erlendis núna, þú og Heiða í parís, Gunni í NY og ég föst hér heima :( en hvernig er það... á ekki að fara að setja myndir inn á myndasíðuna... ?

 

Skrifa ummæli

<< Home