Nýr sími, netið og íbúðarmál
Þar sem mínum tókst að tapa símanum sínum síðasta föstudag (líklegast tekinn í lestinni á leiðinni í vinnuna) þá fór mín og keypti sér nýjan síma. Á nú Ericsson 750i sem er bara nokkuð flottur! Þurfti aðeins að greiða fyrir hann 49 EUR en þurfti á sama tíma að festa mig hjá hjá símafyrirtækinu í heil 2 ár! Annars var ég að prufa að hringja í íslenskan síma úr símanum en ekkert gekk :( og líklegast get ég þá ekki sent sms.. þarf líklegast eitthvað að skoða þetta betur!Thomson (nettengingin mín) hefur ekkert látið sjá sig aftur síðan fyrir rúmlega viku síðan.. Ég er því alveg netlaus heima á kvöldin.. rétt aðeins stelst í lok dagsins að skrifa nokkrar línur.
Ég fékk mér linsur á föstudaginn.. hafði tekið næstum tvær vikur þar sem fyrstu linsurnar sem þeir pöntuðu týndust í fluttningum.. en ég fékk eitt par af linsum til að prufa og fékk þær frítt :D mín getur því ekki kvartað!
Var í gærkvöldi að skoða íbúð sem mér líst rosalega vel á sem og íbúðarleigjandann en hann biður mig um of mikla pappíra því miður.. þarf að hafa tryggingaraðila, aukalega borga 2x leiguna sem tryggingargjald sem og sýna fram á áframhaldandi tryggar tekjur, sem ég hef ekki .. og því eitthvað erfitt að fá eigandann til að samþykkja minn :( ég hélt það yrði auðveldara að leigja hjá einhverjum.. en þeir greinilega biðja líka um mikla pappíra.. alveg rífandi stuð.. jæja.. ég bý þá bara hjá systu næstu árin :)
Bið að heilsa í bili

3 Comments:
æj krúsimúsin mín.. ekki nógu gott að heyra um íbúðarmálin né nettenginguna þína. Hef einmitt verið að bíða eftir þinni á yahoo á daginn en engin Ásthildur ;o( Maður er sko farin að sakna þinnar á netinu.
Knús,
hæ sæta mín, vona að þetta fari að ganga betur... kannski eignastu bara kæró og flyst inn til hanns!! :D
ætlaði náttúrulega að skrifa "til hans" með einu "n"-i, sko... :S
Skrifa ummæli
<< Home