1. mars
Yndislegt veður í dag. Ég horfi á fagurt landslagið á leiðinni í vinnuna. Kalt en sólin skín og smá fönn á jörðinni. Dagurinn byrjaðiheldur brösulega, allir að kaupa lestarmiða á sama tíma í morgun og því löööööng bið og ég því aðeins of sein í vinnuna.Stíg ég inn á skrifstofuna og það er eins og hægt sé að skera í gegnum andrúmsloftið með hníf.. Það var verið að segja upp starfsmönnum í Marseille í gær og það sama að gerast hér á bæ í dag. Búið að segja upp 5 starfsmönnum og meira á eftir að vera tilkynnt seinna í mánuðinum líklegast. Allir því með tárin í augunum.
Ég verð svo að flytja allt hafurstaskið mitt í kvöld til systu og C. Alveg rífandi stuð... en svo auðvitað hlakka ég alveg rosalega til að fara í Alpana eftir aðeins 4 daga :D dataradara...og svo aftur að flytja hafurstaskið mitt í nýju íbúðina hjá Adrian þann 15. mars.. Þá verð ég með internetið í lagi :D og síðasta vikan í vinnunni.. Allt að gerast!

8 Comments:
með hverjum er þín að fara í Alpana.. og hvað verður þinn lengi?? Maður hittir aldrei á þig því mín bara svo upptekin á dagin með dótturinni... tekur allann minn tíma :o( Svona er það að eiga þessi blessuðu börn.
Knús og kossar og allt það ...
tíhí.. já erfitt stundum :) við erum að fara 6 saman. Ég, Heiða, Ragna vinkona Heiðu, Christophe og vinur Christophe hann Christophe sem og vinur Christophe sem er vinur Christophe sem ég veit ekki hvað heitir ;) náði þín þessu :D
christophe á vin sem heitir christoph... hahhaha... frekar fyndið!! En já ég HELD ég hafi náð þessu........
Knús sæta...
"Yndislegt veður í dag. Ég horfi á fagurt landslagið á leiðinni í vinnuna. Kalt en sólin skín og smá fönn á jörðinni."
Jón Ársæll hvað?
Á ekki að birta neinar myndir fyrir liðið á Stórhöfðanum?
kv.
Kúturinn
tíhí.. er verið að kommenta á ljóðabraginn hjá mér.. manni gæti sárnar :D myndir???? jú jú.. myndir fara alveg bráðum að koma á netið!!
Hæ sæta,
Vona að Alparnir hafi staðið undir væntingum! :)
Ætlaði bara að segja þér að ég fór loksins í litun og plokkun í gær og er bara nokkuð sátt. Auðvitað ekki gert eins vel og þegar þú tekur mig í gegn en ég er amk ekki frú Bush lengur!! :D
Hmm I love the idea behind this website, very unique.
»
I really enjoyed looking at your site, I found it very helpful indeed, keep up the good work.
»
Skrifa ummæli
<< Home