21 EME FESTIVAL DES ARTS MARTIAUX
:D jep.. minn er að fara á sýinguna á morgun.. hlakka þvílíkt til... fór meira að segja í "La maison de l'Astonomie" til þess að finna mér smá kíki svo ég sjái betur.. Það verða víst eitthvað um 15 þús. manns að horfa.. held að ég muni ekki sjá neitt rosalega vel uppi í stúkunni. En stemmingin verður þarna :D og svo fæ ég kannski einhvern til að taka þetta upp fyrir mig á Eurosport.. anyone? :DÉg er búin að vera í einhverju veseni með bankakortið mitt.. Búið að neita borgun í tvö skipti :( maður verður þvílíkt skömmustulegur.. glatað.. minn á alveg nóg af pening á kortinu. Er því búin að fara tvisvar sinnum í bankann.. þeir skilja ekki neitt.. endurnýja bara kortið.. en svo byrjar ballið aftur.. þannig að minn fær nýtt kort eftir 10-15 daga. Annars finnst mér bankakerfið stórskrtítið hérna.. Þarf að borga fyrir allt! Ég vildi aðeins millifæra á annan reikning og það ekki hægt á netinu.. varð að fara í bankann, en nei.. ekki nóg að fara í útibú.. þarf að fara í AÐAL bankann til þess að millifæra og svo kostar þetta víst einhvern slatta. Þeim tókst að láta mig skrifa undir einhvern samning þar sem ég þarf að borga 5 evrur á mánuði til þess að ég geti millifært af reikningnum hjá mér :( sögðu það þetta væri allt saman miklu betra.. ég skildi eiginlega bara "c'est mieux" eða þetta er betra.. og minn skrifaði bara undir :) ljóska!! tíhí.. en svona er þetta víst.. núna get ég allaveganna millifært á netinu.
Ég er svo að fara hitta strák í kvöld en við höfum ætlað að hittast síðan um miðjan janúar. Búið að vera ótrúlega skondið. Hann alltaf eitthvað upptekinn, ég svo að fara í Alpana þegar hann hefur loksins tíma, skiptumst á að hringja á símsvarann hjá hvort öðru. Hann hefur áhuga á að læra íslensku, skrifar hana ótrúlega vel en þarf að æfa sig að tala. Hann er svo tilbúinn að kenna minni frönsku í staðinn :) sjáum til hvernig hann er.. ég veit ekkert um hann annað en að hann er þessi virkilega busy týpa.

5 Comments:
uuuuu... you go girl... en hvaða sýning er þetta annars?? mín ekki alveg að skilja og soldið útundan hérna í USA sko.
Looking forward to seeing you soon...
Sigurborg
Vildi bara senda þér knús.
Hvaða sýningu ertu að fara að sjá?
Og hver er þessi strákur? Hmmm
Búin að hitta litla sgrákinn aftur? Minn er sibbinn og nennir ekki að vinna... hlakka til að sjá þig aftur!
heyrðu mín kæra...ertu með ritstíflu...ma´r er alltaf að bíða eftir fréttum frá París og ég farin að halda að þú sért búin að skipta um blogg...hvar er Ásthildurin?
I really enjoyed looking at your site, I found it very helpful indeed, keep up the good work.
»
Skrifa ummæli
<< Home