miðvikudagur, mars 22, 2006

3. hverfið

Og ég er flutt! :D Búin að vera heilar þrjár nætur og líður rosalega vel. Íbúðin er þvílíkt kosý að mér finnst, svaka mikið lofthæð með ekta frönsku munstri í loftinu.

Adrian, gæinn sem ég bý með, er rosalega fínn. Hann er reyndar í burtu síðan á sunnudaginn. Fór í viku til Egyptalands, þannig að ég hef íbúðina alveg út af fyrir mig :P

Annars eigum við eftir að kaupa sitt lítið af hverju. Gardínustöng fyrir herbergið mitt svo nágrannarnir mínir hafi ekki alveg svona gott útsýni beint á rúmið mitt :) Einnig vantar mig meira ljós í herbergið, skáp og einhverjar litlar hillur. En þetta mun koma hægt og rólega held ég. Það vantar einnig einhverja skápa á baðherbergið, annars er það frekar stórt og fínt.

Ég hætti í vinnunni á föstudaginn og hef því þessa og næstu viku í svona ágætri slökun. Þarf reyndar að klára tvær skýrslur fyrir vinnuna, skattframtalið er víst einnig eftir sem og bókhaldið og ársreikningurinn fyrir taekwondosambandið þarf að klárast helst a.s.a.p. allaveganna áður en ég kem til íslands þar sem ársþingið er þann 5. apríl.

Síustu þrjá daga hef ég slakað rosalega vel á :D verið að lesa og elda mér góðan mat.. Aðeins farið í göngutúra í hverfinu. Keypti mér rosalega fallega ábreiðu á nýja svefnsófann minn.. sem mér finnst bara ferlega finn, þótt hann hafi ekki verið dýr :)

Ég ætla að hafa smá innflutningspartý (crémaillère) 15.apríl :) og þið eruð auðvitað öll velkomin!

Annar hlakka ég ekkert smá til að koma heim í nokkra daga. Aðeins ein og hálf vika þangað til :D

Sjáumst fljótlega :D