Alparnir
Algjör snilld :) Ég er alveg endurnærð eftir viku í Ölpunum. Alveg frábær snjór og endalaust skemmtilegar skíðaleiðir. Ég hélt að ég myndi nú ekki vera á erfiðustu eða svörtu leiðunum, taldi að þær væru nú allt of erfiðar fyrir minn.. en ég held nú ekki :) Farið var í eins margar svartar og við mögulega gátum, fórum út fyrir leiðirnar, inni á milli trjáa og rembdumst við að skíða í púðursnjónum, algjört ævintýri! Á kvöldin var svo notið þess að borða góðan mat, fara í sánu og hammam sem kælt sig eftir á í sundi. Spilað var oft langt eftir kvöldi og sofið vel fyrir næsta dag :DFrederic, gæi frá Marceille, vaknaði svo alltaf eldsnemma til að fara og kaupa nýbakað bagget brauð og croissant... humm
Rauða skíðaúlpan og flíspeysan góða sem yndislegu vinnufélagarnir mínir gáfu mér í kveðjugjöf kom að góðum notum í fjöllunum. Ég á eftir að vinna í myndasíðunni, en mun setja þangað einhverjar skemmtilegar myndir úr ferðinni innan nokkurra vikna.
Þessi vika fer í að flytja í íbúðina hjá Adrian :) var að kaupa mér sófarúm í gær í Ikea, ekki alveg flottasta rúmið sem ég gat fengið en nægjanlega fínt til að byrja með. Einnig ætla nokkrir í vinnunni að fara í keilu á miðvikudagskvöldið, held það verði rosalega skemmtilegt, ekki spurning að það þurfi að rífa aðeins stemminguna upp hérna.
Bið að heilsa í bili

2 Comments:
loksins að gellan mæti á svæðið og bloggi!! Maður var farin að sakna þinnar. En hvað segirðu.. ertu enn að vinna eitthversstaðar??
Knús og kossar....
og já... bara 17 dagar þangað til við lendum á klakanum og 19 dagar þangað til þín kemur.... get hreinlega ekki beðið :o)
Skrifa ummæli
<< Home