þriðjudagur, maí 09, 2006

Bloggurinn

Hmm.. eitthvað langt síðan ég hef bloggað síðast... hef litla sem enga afsökun.. dett bara stundum úr gírnum..

Síðustu fréttir.. Bardagalistarsýningin var frábær!
Heimferðin til Íslands var virkilega skemmtileg, gerði heilan helling, en nenni ekki að telja það upp :p Góður tími með góðum vinum og fjölskyldu sem og Taekwondo.

Fékk heimsókn til Parísar í síðustu vikur. Gunna vinkona skellti sér til minnar í afslöppun :p Get þó ekki sagt að um afslöppun hafi verið að ræða þar sem mikið action var í gangi þessa vikuna. Heita vatnið fór af, Kóngulóaratvik í sturtunni fyrir greyið Gunnu,innbrot... og stýflun í endhúskrananum.

Sem sé það var brotist inn í Íbúðina mína síðasta fimmtudag, eða 4. maí. Frekar súrt þar sem þjófarnir einblíndu á mitt herbergi og tóku tölvuna mína, mynavélina mína, síma sem ég á, fullt af hleðslutækjum, skartgripaskrýnið mitt sem og alla skartgripina mína :'( Frekar sárs. Ég var með úrið og tvo hringa á mér, en engir eyrnalokkar fengu að príða mín fögru eyru og ekkert hálsmen var ég með heldur á mér.. og því á ég ekki EINA eyrnalokka né hálsmen.. minn því svolítið súr.. Svo auðvitað öll gögnin á tölvunni minni ..dísús.. ehemm.. og já.. hárblásarinn minn var tekinn líka!!!! Svo var Adrien herbergi alveg látið í friði.... hans tölva á sínum stað sem og myndavélarnar einnig... ekkert hreyft við í hans herbergi en farið í ALLT hjá mér.. og ekki sérst neinar ábendingar um hvernig þjófarnir komust inn..sem er óþæginlegast.. ekkert brotið upp við við búum á 3. hæð og ill ómögulegt að komast inn um glugga.. því spurning hvernig komust þeir inn????? En það er því miður mikið um pró þjófa hérna úti!!

Vinsamleg tilmæli til allra.. taka bakup af tölvugögnunum hjá ykkur!!! Aldrei nægjanlega brínt málefni.

Ég stend því fljótlega í flutningi aftur.. Er á leiðinni á campusinn.. Mér var tjáð fyrst að ég gæti vel fengið íbúð þar.. en í dag kom í ljóst að það gæti reynst erfitt og í boði í augnablikinu er aðeins double herbergi!!!! garg.. virðist ekkert vera að ganga mína leið núna :p jæja.. þetta verður vonandi skemmtilegt.. kynnast herbergisfélaga og deila öllu :p

Ég vona þó að það rætist úr þessu öllu og hægt verði að finna betri viðverustað.

Ég er að standa í núna að ganga frá tjónaskýrslum. Virkilega leiðinlegum prósess!!!


@+

4 Comments:

At 12:00 e.h., maí 11, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

hæ hæ

Rosanlega leiðinlegt að heyra með skartgripina þína... þú notaðir þá svo mikið, hélst tryggð við djásnin þín... já og myndavélin og tölvan... ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur :(, ég veit hvað þér fannst vænt um þessa hluti :( Píla sendir risa knús!

kveðjur,
Erla

 
At 6:54 e.h., maí 11, 2006, Blogger Asthi said...

takk takk sæta.. já ég er miður mín yfir þessu. Mig langar helst til þess að sparka í einhvern.. aðeins svolítið erfitt, vil ekki sparka í einhvern sem á það ekki skilið og líklegast sparka ég ekki í sökudólginn/sökudólganna í bráð!

 
At 6:07 f.h., júní 11, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Interesting website with a lot of resources and detailed explanations.
»

 
At 6:07 e.h., júlí 21, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Nice idea with this site its better than most of the rubbish I come across.
»

 

Skrifa ummæli

<< Home