fimmtudagur, maí 11, 2006

Paranoia

Ákveðin paranoia er byrjuð að myndast hjá minni..Þar sem ekkert hefur gegnið að komast að því hvernig í ósköpunum þessi þjófar komust inn, hvort þeir komust inn um gluggana eða hvort þeir höfðu lykil þá er maður með augu og eyru opin og sperrt alltaf.. og því miður.. hnút í maganum.

Í gær hringdi maður bjöllunni seinnipartinn, minn opnar dyrnar og fyrir framan stendur maður, mjög ófrýnilegur ásýndum (og tileygður þar að auki), í dyrunum og segir að hann verði að komast inn í íbúðina til að hreinsa eldstæðin sem og heita vatns háfinn. Minn skilur frekar lítið.. hann segir að þetta sé skilda! Ég reyni þá að hringja til Adrien en hann svarar ekki. Ég reyni þá að hringja til annars vinar míns og fá þá til að tala við hann. Þetta er þá þannig að það sé skilda að gera þetta einu sinni á ári annars getur leigjandinn eða eigandinn lennt í vandræðum með tryggingarnar ef eitthvað gerist! ÉG hleypi honum þá inn.. en eftir nokkrar sec.. þá koma 2 í viðbót!!! Æðislegt.. minn í íbúðinni með þremur ófrýnilegum karlmönnum..sem eru i raun bara að skoða íbúðina. Adrien hringir svo, og talar við einn þeirra.. Þeir segja að eigandinn hafi sent þá hingað og að þeir hafi skilið eftir miða um að þeir kæmu á þessum tíma. Adrien ákveður þá að hringja í leigumiðlunina til að hafa samband við eigandann og tékka á þessu..
það kemur svo í ljós auðvitað að eigandinn bað þá ekkert um að koma hingað. Þeir reyndu að rukka mig um morðfjár fyrir að hafa komið.. sem ég auðvitað neitaði að borga. Adrien kom stuttu seinna og þeir sögðu þá að reikningurinn væri 4 sinnum ódýrari heldur en þeir sögðu mér. ÞETTA VORU FÍFL, og minn alltaf sami naiv einstaklingurinn.... jæja.. við getum víst lítið gert við þessu.. þótt þeir höfðu brotið upp steypu og eyðilagt meira en þeir hreinsuðu þar sem mín hleypti þeim inn!

Í dag var ég svo paranoid.. þar sem ég heyrði fullt af hljóðum frá þakinu. Alveg vildi ég vera viss um að ÞESSIR gæjar ættu að vera þarna, aldrei að vita nema þeir væru að reyna að ræna aðrar íbúðir. Aftur hringir mín í Adrien, aumingja greyið orðinn stressaður að svara símanum frá mér.. alltaf slæmar fréttir. Hann hringir í leigumiðlunina og hún staðfestir að ENGIR ættu að vera upp á þakinu. Hann ætlar sem sé að fara að hringja á lögregluna. Ég ákvað fyrst að gerast spæjari.. fer eins hátt og ég kems upp.. og reyni að fara upp á þakið til að tékka.. sé nokkra upp á þakinu .. en ekki akkurat upp á okkar þaki..og þeir virðast vera að vinna HEIÐARLEGA :p ég tek þó mynd af þeim með símanum mínum til öryggis...

Jep ég veit.. algjör paranoia í gangi en ég vona að þetta róist fljólega :)

Minn hálfpartinn fluttur til syssu sem og svo flyt ég á campusinn í byrjun júní!

4 Comments:

At 7:15 e.h., maí 11, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

æj músin mín... ekki nógu gott hvernig þeir hafa farið með sálina þína... Manni langar mest bara að koma til þinnar og gefa þinni RISA KNÚS!!! (((cyper knús))) Mundu bara að ef eitthvað gerist aftur er þín er heima þá kann þín Taíkvandó!!!! hehehe.....
Knús og kossar yfir hafið.
Sigurborg

 
At 3:58 f.h., maí 13, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

hæ skvís.. hefur þú tíma í cand-psych yfirlestur um helgina...? mig vantar eitt stykki yfirlesara

 
At 3:03 f.h., maí 25, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

rosalega er þín dugleg að pósta! gaman væri að fá fréttir frá suðrænum og hlýrri löndum...

 
At 3:24 e.h., maí 29, 2006, Blogger Bryndis said...

hæ sæta mín, óttalegt vesen var þetta á þessum leiðinda, óprúttnu gaurum :( Bara ojbarasta á þá sko. Þetta hlýtur að fara að skána allt saman hjá þér! Only fabulous things ahead, myndarlegir karlmenn... skemmtilegur skóli... Knús og kossar, músin mín!

 

Skrifa ummæli

<< Home