fimmtudagur, júní 15, 2006

Afslöppunartími..

Annars á ég að vera að læra.. Þurfti að koma til systur minnar til að ná bók sem ég var að panta á Amazon, brjálaða stærðfræði kennslubók Angel de la Fuenta, Mathematical models in Economics, sem ég hefði viljað fá eittthvað fyrr.. en alas.. þetta tók þó ekki eins langan tíma og þeir sögðu á netinu, bókin átti að koma 22. júní, en sem betur fer fyrir mína kom hún aðeins fyrr þar sem ég þarf virkilega á henni að halda núna.. aðeins nokkrir dagar í miðsannarpróf :P

Annars rólegt að frétta.. kemst mjög lítið á netið sem er svo sem ágætt þar sem ég þarf að nota tímann við að læra.. kakkalakkarnir ennþá í heimsókn í herberginu hjá minni. En annars er mér aðeins léttar fyrir hjartanum þar sem:

Ég þarf víst ekki að taka alla fjóra stærðfræðiáfangana...heldur aðeins tvo :) fewhh :P sem eru þó svaðalega erfiðir, Optimization og Probability Theory. Ég og Alex, strákurinn sem er einnig að fara á fyrsta árið í MMEF, fáum einnig einkakennara í tvo klukkutíma á dag til að fara yfir stærðfræðicase með okkur :D

Ég er annars að kíkja til London núna á Laugardaginn :) Brósi nýorðinn 30 og hann í London í augnablikinu, gaman að kíkja á hann sem og sjá London :P hef aldrei komið þangað.. Bíddi..af hverju ertu ekki í London núna!!!!

Erla er svo að fara að útskrifast eftir nokkra daga sem Cand. Pshyc. í sálfræði.. stelpan útskrifast með rétt nærri 9,0 í meðaleinkunn og gef ég henni lófaklapp fyrir!!! skil ekki alveg hvernig þetta er hægt .. ouf.,... allaveganna..dugleg stelpa ;)

6 Comments:

At 4:07 f.h., júní 16, 2006, Blogger Sigurborg said...

cool... Æðislegt að þú fékkst að létta aðeins á náminu!! Og cool að vera að fara til London.. má minn koma líka ;o)
Knús....
Ameríkaninn

 
At 2:05 e.h., júní 21, 2006, Blogger Bryndis said...

Ásthildi heeeeim, Ásthildi heeeeim, ég vil fá Ásthildina mína!! Buhuuu! (minn saknar þíns)

 
At 10:24 e.h., júní 24, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Sæl frænka, langaði bara að kasta á þig kveðju.
Við erum komin út til Kanda og að reyna að koma okkur fyrir, bíðum enn eftir gámnum svo það er frekar tómlegt hérna hjá okkur. Gangi þér vel í náminu.
Kveðja Sif og co.

 
At 10:27 e.h., júní 24, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Ég meinti sko Kanada ss. Victoria á Vancouver Island.
Ps. Ég bið kærlega að heilsa ma og pa og auðvitað Heiðu, Gunnsa og Erlu, þ..e þegar þú heyrir í þeim næst.
Túrilú.

 
At 2:23 e.h., júlí 06, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

hæ hæ! gangi þér vel í prófinu í dag :) frétti af því hjá mömmu þinni..! hvernig væri að fara að pósta smá.... búhú!

ciao, Erlíus

 
At 2:20 e.h., júlí 16, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

hæ hæ sæta.. hvað er að frétta?? Er þín bara algjörlega netlaus þessar vikurnar? Hef ekki heyrt í þér í LANGAN tíma.
Knús og kossar..
Sigurborg og familía í USA

 

Skrifa ummæli

<< Home