sunnudagur, júní 04, 2006

Sorbonne og Dormið

Já, skólinn byrjaður og ég er búin að vera á haus. Lítið sem ekkert verið nettengd og á hlaupum út um allt. Er búin að flytja töluvert af dótinu mínu á dormið, en herbergið sem ég er með er svona lítil studio íbúð, 20 fm líklegast með ísskáp og tveimur litlum rafmagshellum, klósett og sturta..já og reyndar er einnig bidet :) nota það líklegast ekki mikið!

Herbergið er ílangt og mjótt og frekar hrátt.. Ekki virka öll ljósin og gardínurnar eru allar rifnar og í henglum :P en ég held að ég geti gert þetta eitthvað pínulítið sætara og þá verður þetta allt í lagi.. NEMA ég fær enga internettengingu í sumar :( sem er endalaust súrt!!!

Fyrsti dagurinn í skólanum var á föstudaginn. Tími í Optimization og var hann drulluerfiður, math math math math math og aðeins meiri math... og svo allt á ensku.. og því var ég eiginlega í vandræðum þó enskan hjá mér sé ágæt þá þekki ég ekki fagorðin og ég skildi svona aðeins þegar formúlurnar voru ritaðar niður.. en svo er kennarinn með hreim og talar fáránlega hratt og skrifar hroðalega.. ouf... ég var með í maganum eftir þennan dag..

Ég HÉLT að ég væri að fara í kúrsa til að undirbúa mig fyrir fyrsta árið í MMEF en svo virðist vera sem ég sé með krökkum sem eru að fara á annað árið. Við erum 13 krakkar og 10 af þeim eru að fara á annað árið í QME náminu og því búin að taka fyrsta árið og þekkja þetta töluvert fyrir eðlilega! Við erum þrjú sem erum að fara á fysta árið, ein stúlkan er frá Kína og var að klára Masterinn í stærðfræði/tölfræði.. dísús.. og hinn gaurinn er eins og ég. Að fara á fyrsta árið í MMEF og hefur ekki snert stærðfræði síðan í menntaskóla. Nefninlega í mínu háskólanámi var aðeins einn stærðfræðikúrs.. og því frekar lítið á því að græða. Ég er því búin að vera í SMÁ panicki þessa helgina. Fékk þó flottar glósur hjá einni stúlkunni síðan síðasta haust hjá henni.. og mér sínist þær geta hjálpað mér heilan helling að leysa fyrsta verkefnið sem okkur var falið að gera og skila fyrir næsta föstudag!!

ÉG þurfti einnig í gær að taka sófa/rúmið mitt í íbúðinni sem ég leigði út maí mánuð hjá Adrien. Það tók helv...helling tíma að finna bílastæði.. fundum ekkert fyrr en við lögðum töluvert langt í burtu í bílastæðahúsi. Við þurftum því að bögglast með rúmið alla þessa leið.. og auðvitað vita vonlaust að halda á því straight og því fékk það verulega illa útreið.

Ég vil óska vinum mínum Kristínu Ingu og Ragnari ynnilega til hamingju með brúðkaupsdaginn þeirra sem var í gær 3. júní. Vildi að ég hefði getað komið! Vona að dagurinn hafi verið fullkominn fyrir ykkur! Hlakka til að sjá myndir af deginum :)

Ég vil einnig óska Gunnu minni ynnilega til hamingju með afmælisdaginn á föstudaginn sl. Fyrirgefðu mér fyrir að hafa gleymt deginum!!! Ég mundi eftir honum alla vikuna en svo var allt á haus á sjálfum deginum!!! Ég er bara vonlaus stundum :(

annars knús og kossar til ykkar allra,

p.s. Sigurborg.. viltu senda mér upplýsingar um síma og heimilisfang hjá ykkur.. hef ekkert í höndunum og það tókst ekki að forwarda mailinu frá icelandic með þeim upplýsingum!!!

p.s.2 Mínum tókst að kaupa sér tölvu loksins! :) Vaio Sony tölva, 13.3" skjár, voða sæt og töluvert öflug :) minn því svaka ánægð með kaupin

4 Comments:

At 5:33 e.h., júní 04, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Ógeðslega gaman að þú skulir vera byrjuð að blogga aftur.
Það var svakalegt partý á Selfossi í gær þar sem Pétur litli trítlaði yfir þriðja tuginn. Margir vestfirðingarnir úr gamla Nauteyradæminu mættu og var ferlega fyndið að sjá lið sem maður sá síðast fyrir meira en tíu árum síðan...
Gangi þér vel í skólanum mín kæra og farðu vel með þig.
Ása Marin
xxx

 
At 1:52 e.h., júní 06, 2006, Blogger Bryndis said...

knús til þín, músin mín, þetta verður allt betra þegar þú ert aðeins komin inn í orðaforðann etc.! Kyss kyss (ekkert bang bang!)

 
At 6:07 f.h., júní 11, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Your site is on top of my favourites - Great work I like it.
»

 
At 6:07 e.h., júlí 21, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Your website has a useful information for beginners like me.
»

 

Skrifa ummæli

<< Home