Stærðfræði og kakkalakkar!
jep, fyrsta nóttin mín á dorminu var þannig að ég vaknaði við að einhver af vinum mínum kakkalökkunum var að príla á handleggnum á mínum!!!´Eitrað var fyrir þeim í lok apríl en einhverjir virðast hafa verið eftir í mínum herbergi, þar sem ég er búin að leggja tvær gildrur í herberginu og þær eru fullar.. ojjjjj.. og mín versta martröð að einhver ljót skordýr myndu skríða á mér meðan ég er sofandi er orðin að veruleika :p ég er þó enn á lífi og því allt í lagi. Þarf aðeins að finna lausn á þessu eins og stærðfræðinni sem er kennd!
Hef aldrei séð svona svaðalega stærðfræði, langt fyrir ofan mína getu í augnablikinu! Ég hef tekið tvo áfanga í macro og microeconomics.. en greinilega eru þeir ekki nægjanleg undirstaða fyrir þessa áfanga.. formúlur á formúlur á ofan og óskiljanlegar þar að auki..og svo þarf að sanna allt saman!!! Líkindafræðin og hámörkun eru þó enn verri áfangar.. ég er eiginlega búin að vera í sjokki síðan á föstudaginn.. svona að ég nái að tjasla þessu saman einhvernveginn..
Hef ekkert internet á campusnumm :( og því verð mun ég ekki vera mikið á netinu á næstunni :P enda þarf mín að læra :) verkefnaskil í Optimization á morgun og ég þarf að lesa einhver ósköp áður en ég skil að einhverju leyti hvernig ég á að leysa þessi dæmi :l
A+ (eða þar til næst kæru vinir)

5 Comments:
Stærðfræði og kakkalakkar eru andstyggileg. En þú ert yndisleg. Svo gettu hver vinnur? Knús, Biddí
you go girl! you can do it .... :)
píla segir mjá
brósi og Erlíus
úfff... mín vaknaði við það fyrir nokkru að það var skríðandi kónguló á minni... damn varð ég bilðu!!! Búin að eitra út um allt fyrir þeim núna.. spurning hvort eitrið sé nokkkuð hætturlegt dóttur minni, lol! En hey.. síðan í morgun þá er Penelope byrjuð að SKRÍÐA!!!! Kíktu á myndbandið af henni á síðunni hennar.
KNÚS...
Sigurborg og familía
vil fá meira frá ásthildi minni! Og þurrkaðist síðasta commentið mitt sjálfkrafa út eða strokaðir þú það út... hmmm... það var ekkert dónó í því!! Knús og kossar, músin mín, vonandi hefurðu það sem allra best!
hmm.. skil ekki.. mín ekkert þurrkað út.. þín verður að skrifa aftur.. annars er ég að skrifa þetta í annað skiptið.. hin bara þurrkaðist út ..hmmm :( wird!
Skrifa ummæli
<< Home