Vonlaus penni!
Jamm..veit upp á mig skömmina :s Ekkert hægt að stóla á að ég uppfæri bloggið hjá minni á nokkurra daga fresi.. eða jafnvel vikufresti... ehemm..það er svona meira mánuður hjá minni..Prófin búin.. komin inn í skólann í haust :p .. jibbíí.. og búin að fá út út prófinum, frékk reyndar að vita að ég væri samþykkt inn í prógrammið áður en ég tók lokaprófin.. sem létti aðeins hjartanu.. náði prófunum .. ouf..
Flutti svo enn og aftur.. nú af dorminu og aftur til systu... fór svo í viku bakpokaferðalag á Brittaniuskagann.. Fór á Celtic hátíð í Lorient svo að skoða bæina í kring.. Quimper, Concourneau og Bernedet. Þvílíkt fallegir bæir og hef ég ekki komið á marga betri staði en á ströndina og tjaldstæðið í Bernedet. Borgaði 10 Eur á dag fyrir tjaldstæðið og aðgang að surtu og hreinsiaðstöðu, bókasafni og fríu wifi svæði, squass var leikið á hverjum degi í þá þrjá daga sem ég var þar. ströndin hrein og engin sölumennska á ströndinni :) sjórinn notalega kaldur og hægt að synda á pínulitla hálfgerða eyju og njóta. Þetta var því yndisleg vika í alla staði.
ER að pakka í dag :P á leiðinni á frónið.. jibbí... hlakka til að sjá ykkur.
ég vona að þið hafið fyrirgefið minni fyrir að hafa ekki skrifað bréf í allt sumar.. alveg vonlaus.. og lítið um nettengingar því miður..sem og svo eitthvað töluvert að gera í skólanum. Allaveganna.. reyni að bæta upp fyrir það með kossum og knúsum þegar ég kem heim.
sjáumst fljótlega :D
a bientôt mon amies

2 Comments:
ætlar þín að halda áfram að vera vonlaus penni!!!! Nei segi nú bara svona.
Knús og kossar og hlakka til að sjá þína um jólin... verður svaka stuð sko.
Sigurborg
Jahá!!! það er þetta með þín og mín!!!! Það var verið að gefa út íslenska orðabók,HE;HE. Okkur finnst ÞÚ(ÞÚ) ekki nógu dugleg að láta í ÞÉR heyra.Það þurfa ekkert að vera sendibréf upp á marga metra,bara yndislega gaman að fá að fylgjast með ykkur,bestu kveðjur gamla settið á Bröttugötunni.
Skrifa ummæli
<< Home