miðvikudagur, september 06, 2006

Jean Sarrailh

Hérna mun ég búa næstu 10 mánuðina :) Herbergið er lítið, 14 fm, en snyrtilegt og innifalið er háhraða internettenging sem og hægt að fá símalínu og tengja sjónvarp... einnig er í herberginu baðherbergi með sturtu og lítið eldhús.. sem sé allt til staðar í herberginu :) Sjá meðfylgjandi tengil.. Þetta eru einnig höfuðstöðvar Crous, en það er fyrirtæki sem sér um aðstöðu, störf, félagsstörf og fl. fyrir nemendur.

http://www.crous-paris.fr/logement/index.asp?sr0=3&sr1=1&sr2=14

Útsýnið er heldur ekki af verri endanum:)Ég sé út í Luxemburgargarðinn og tignarlegur Effelturninn gnæfir yfir glitrar hann í 10 mín á hverjum klukkutíma á kvöldin :)

Þessi vika er búin að fara í að koma sér fyrir á dorminu, þveglar og ruslafötur, skóladót sem og pappírsvinna vegna skólans og stúdentakortsins. Þarf ég að fara í læknisskoðun til að hægt sé að meta hvort ég sé fær um að búa á dorminu :P..sem sé 20 Eur aðeins til að fá stimpil frá lækninum um að ég sé nokkuð heil.

Ég hef verið að vinna í því að setja upp myndaalbúm á netinu..það allt saman að ganga upp..nema hvað ég finn engar myndir frá apríl 2005, þ.e. eftir að ég keypti mér myndavélina í USA..einhvernveginn hafa þær myndir farið með tölvunni minni þegar brotist var inn í maí,
Ég finn engan veginn backupið af þessum myndum :(

Allaveganna...ég reyni að koma myndunum upp sem ég er með og sendi ykkur link vonandi fljótlega :P

Bið að heilsa í bili.. þar sem ég er með internettenginu hef ég ekki mikla afsökun til að setja ekki smá komment af og til :P

Jæja.. mín er sem sé ánægð, eða ÉG er ánægð :P (Ég hef tekið ábendinu frá fjölskyldumeðlimi um að ég noti allt of mikið af MÍN hitt og MÍN þetta) :P

Á bientôt mon amis

1 Comments:

At 12:46 f.h., september 08, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ,hæ MÍN kæra!!!Gott að MÍN tekur sig á.Rosalega gaman að heyra frá ÞÉR aftur.Knús,knús(þetta hlýtur að vera í orðabókinni HE,HE).Sú gamla í Nesinu. P.S pylsan var rosa góð og rann ljúflega niður.

 

Skrifa ummæli

<< Home