La premier jour d'école
Eða fyrsti skóladagurinn er á morgun..Ballið sem sé byrjað.. og hvað eru nemendur sem eru með mastersgráður og doctorsgráður að villast í programmið hjá okkur ..gargg. gerir þetta þeim mun erfiðara fyrir okkur hin.. ohh..well. Alveg ótrúlega mikið um að nemendur séu með eina, tvær eða eru jafnvel að fá síða þriðju mastersgráðu... eða að byrja á mastersgráðu þegar þeir hafa nú þegar doctorsgráður.. ég ekki alveg skilja stundum.Annars erum við 10 nemendur sem verðum í MMEF prógramminu.. Áttum að vera 11 en eitthvert vandamál með visa's hjá einum nemendanum. Frakkarnir víst eitthvað erfiðir að gera visað.. hef þó heyrt að Þjóðverjarnir séu erfiðari.. búið að vera vandamál með einhverja 7-8 visa hjá nemendunum í QEM prógramminu en þeir hafa allir styrk frá EU og ættu því ekki að vera í vandræðum með að sjá fyrir sér.
ÉG þurfti eftir allt saman ekkert að taka frönskuprófið.. var aðeins fær upp um bekk síðan í sumar og byrja á morgun. Fæ heila 100 klukkutíma í frönsku fyrir jólin..eins gott að ég nýti það vel og verði sleip í frönskunni um jólin :P
Helgin er búin að vera rosalega fín. Yndislegt veður búið að vera um helgina og því spásserað um París eða slakað á á bökkum Signu. I kvöld vörum við um 7 nemendur sem elduðum okkur og borðuðum snillar máltíð svona sitt lítið af hverju.. smá steiktar pulsur, creps með osti, núðlur, sallar, Cedré og bjór.. sem og toufu desert með almond bragði..nokkuð gott :) og svo var notað allskonar áhöld til að borða á.. t.d. pottlok eða lok af skál.. því ekki á einn nemandi nægilega marga diska, gaffla, hnífa eða skeiðar fyrir alla :P en það gerir ekkert til. Allir ánægðir.´
Ég er núna komin á dormið mitt, sönn mjööög þreytt og alveg kominn háttatími.
knús og kossar

4 Comments:
gaman að frá fréttir af parísarbúanum, þú átt eftir að standa þig glimrandi vel í náminu skvís.
Við Gunni erum farin að fá fiðring í magann fyrir parísarferðinni í október.... verður ekkert smá gaman að kíkja.
vertu svo dugleg að læra!
Píla og company
He,HE,ég þekki einn sem sagðist vera SVO sætur þegar hann var vel saddur,hvað gerir þá ein smá prentvilla,knús og kv. Sæa.
okay.. was is.. MMEF og QEF?? Explain to the dumbheadÞÞÞ
Le premier jour de l'école. ou... La premiére journée de l'école....
já svona er það maður er alltaf að læra ;)
biiisouss
Skrifa ummæli
<< Home