föstudagur, september 29, 2006

Mad World

Er búin að hlusta á lagið Mad World eftir Michael Andrews(feat. Gary Jules)svona 100 sinnum í kvöld. Hef það notalegt og er að læra Probability..Svaka stuð :)

Annars er mánuðurinn búinn að líða rosalega hratt..miðsannarpróf í einu faginu eftir viku :s .. mikil tilhlökkun hér á bæ. Fjármál hafa ekki ennþá byrjað því miður..erum því búin að missa af þremur vikum með fjármálum og því verður þetta mjöööög þjappað þegar kúrsinn byrjar þar sem aukatímum verður troðið endalaust í stundaskránna!!! En ég vil alls ekki missa af þessum kúrs þar sem aðaltilgangurinn var að taka fjármálakúrsana.

Hef eins og ég hef áður sagt yndislegt útsýni.. þar á meðal er effelturninn sem blikkar fyrir mig á klukkutímafresti í 10 mín. á hverjum klukkutíma :) svaka rómó..

Nemendurnir eru rosalega fínir..margir stærðfræðisnillingar.. úff..ein með Phd. í stærðfræði, tveir með mastersgráðu í stærðfræði.. og svo erum við 4 sem erum með litla sem enga stærðfræðimenntun.. sem er alveg rosalega erfitt í þessu námi.. but..við lærum þá aðeins meira. Mórallinn er góður.. höfum borðað nokkuð oft saman.. annað hvort eldum við saman eða borðum í mötuneytinu, sem kostar aðeins 2,75 Eur.. ekki slæmt :) Ég hafði þó rétt fyrir mér því miður þegar ég taldi að ég yrði með heldur ungum krökkum.. þau eru nokkur sem eru aðeins 21 að verða 22..smá aldursmunur :P og þau alltaf tilbúin að fara út og skemmta sér.. meðan ég vil oftast vera heima og slaka á :P ohhwell..erum samt nokkur að fara í salsatíma á morgun :) he he..verður gaman að sjá..

Annars held ég að ef ég vill þá get ég lært alveg heilan helling.. þau eru nokkur búin að bjóða mér að aðstoða mig hvenær sem er.. meira að segja Galia, sem er með Phd. í stærðfræði.. hún vill endilega aðstoða mig hvenær sem ég vil.. er einnig búin að bjóða mér í hádegismat á morgun.

Annars er mjög áhugaverðir nemendurnir. Þeir eru að koma frá öllum heimshornum. Frá Nigeriu, Kóreyu, Líbanon, Argentina, Ítalíu, Kanada, Madagaskar, USA/Rómaníu, Túní og Úkraínu.. sem og auðvitað ykkar ástkæra Ísland :P . Við erum einnig í kúrsum með QEM prógramminu, en þar eru Inverjar, Kínverjar, Georgia og fl. Allir með sinn kúltúr og trú.. Imen frá Túnis er t.d. múslimi og það er Ramada núna...frá 23. sept til 23. okt. Greyið hugsar því ekki um neitt annað en að hafa kvöldmatinn tilbúinn á slaginu 20:00 því hún auðvitað búin að fasta frá fimm um morgunin, fengið hvorki vott né þurrt á þessum tíma.

Tími til að fara að lúlla líklegast..

Bið að heilsa í bili :)

4 Comments:

At 2:02 f.h., september 30, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

heyrru... má mínkoma í heimsókn og sjá Effelturninn?? Væri sko alveg til í að sjá hann.......
Gaman að það sé gaman í skólanum..... hérna er bara svona lalala í skólanum enda erfitt að vera mamma, ólétt og í skóla :-s

Knús og kossar,
Sigurborg og co.

 
At 10:30 e.h., október 01, 2006, Blogger Bryndis said...

hæ sæta spæta,
sakna þín ógurlega! Knús og kossar,
Biddí

 
At 7:38 e.h., október 02, 2006, Blogger Asthi said...

ALLTAF velkomin :D og ég get rétt ímyndað mér að það sé erfitt að vera ólétt mamma og í skóla.. úff..

 
At 2:02 f.h., október 03, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

bara smá kveðja hér á bloggið þitt...mér finnst svo gaman þegar þú setur inn færslu :) go girl - go girl

 

Skrifa ummæli

<< Home