laugardagur, október 07, 2006

Fjölskyldan í heimsókn, próf & Nuit Blanche

Ég nú búin að taka fyrsta miðsannarprófið.. Erum búin að vera á hraðferð í Intermediate Probability og miðsannarprófið í gær. Eins endalaust stressuð og ég var fyrir prófið þá var það létt :) og hef ég ekki miklar áhyggjur af því..Þetta próf hefði getað verið svo miklu erfiðara..

Annars er vikan búin að líða ótrúlega hratt. Fór út að borða síðasta laugardag á Indverskan matsölustað, Krishna Bhavan 100% pure Végétarien, þvílíkt gott.. og alveg pakksödd og verðið ekki á verri endanum.. aðeins 9 Eur fyrir alles :)

Það er farið að kólna.. engin kynding ennþá þar sem ég bý.. verðu líklegast eftir 2 vikur.. vonandi að það verði ekki kaldara en það er nú. Annars getur það orðið virkilega heitt og notalegt veður.

Fjölskyldan að koma út eftir eina viku :D því miður verð ég að taka próf á afmælisdeginum hans pabba :'( svo koma öll miðsannarprófin og eitt lokapróf í runu þar á eftir .. dó!!! ) en þetta verður alls ekki leiðinlegt að fá þau í heimsókn :D Förum í Operuna, nýju og gömlu, efast ekki um að þetta verði snilld. Aðeins sorglegt að einn fjölskyldumeðlimur þurfi að vera eftir heima.. En það gæti orðið erfitt að hafa hana elsku Pílu með sem og koma henni aftur til Íslands.. 6 vikur í sóttkví er ekki skemmtilegur tími :P En ég held hún muni hafa það fínt heima á meðan.

Annars er ég lítið búin að gera nema að fara í tíma og læra..held ég fari og noti daginn í dag og kíki í búðir :P í dag er Nuit Blanche í París.. það er því mikið á dagskrá.. tónleikar út um allt, borginn öll lifandi alla nóttina, söfn opin allan daginn og hugsanlega um nóttina líka.. og allt frítt.

Bið að heilsa í bili, verð að nota daginn eitthvað :P

Knús og kossar

1 Comments:

At 11:20 e.h., október 11, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

hæ hæ! gangi þér vel að læra, okkur hlakkar ekkert smá til að koma :)

Píluknús....., Hringbrautin!

 

Skrifa ummæli

<< Home