Fjölskyldan og próf
Sæl,Vonandi hafið þið það gott á fróninu. Það er alveg byrjað að kólna hérna.. þó enginn snjór og ennþá hægt að labba úti á peysunni.. svona allaveganna á daginn.
Búin að fá út úr fyrsta miðsannarprófinu.. jibbí.. ég fékk A :D.. svona helv.. ánægð með það.. Vorum einhver þrjú sem fengum A.. eitthvað skrítið með kennarann.. hann gat öllum B eða B- fyrir engar villur.. kannski aðeins framsetning ekki eins og hann vildi hafa hana.. ég meina doctor í stærðfræði fékk B sem og einn með master í stærðfræði fékk A - en ég fékk A og hann sem hafði verið að fara yfir dæmin með mér deginum áður :P frekar furðulegt!!!
En núna eru öll miðsannarprófin að koma sem og eitt lokapróf!! shit.. pínu stressuð.. er að fara í eitt næsta miðvikudag.. í Industrial Organization..rífandi stuð.. Annars er ég að fara í Operuna annað kvöld sem og miðvikudagskvöldið.. Pabbi á afmæli 18.okt.. sextugur kallinn :D... Bjössi frændi átti afmæli 13. okt sem og Tryggvi á afmæli á morgun, til hamingju báðir tveir!!.. bræður Pabba :)
Jæja nóg í bili.. er að læra fyrir prófið á miðvikudaginn..
bless í bili

7 Comments:
til hamingju með A-ið!!! Ekkert smá flott hjá þér skvísa!!
Bið að heilsa ma og pa.
Knús,
Sigurborg
Hvað er svo að frétta? Hvernig gekk í prófunum og svona?? Væri gaman að fá fréttir.
Knús og aftur knús,
Píla
da
Hæ sæta, fær maður aldrei að heyra neitt í Ásthildinni sinni :.( Sakna þín!
Hæ,hæ!!! Er ekkert að frétta?? Gengur ekki allt vel???? Nokkur orð takk,væri vel þegið.1000 knús.
Brattagatan.
jæja krúsíkrús...nú er fólk farið að væla um blogg...láttu það nú eftir okkur að setja inn nokkrar nýjar línur ;)
kossar og knús
Ása Marin
hmmm...þarf maður að leggjast á hnén og grátbiðja þig um fréttir!!!!
Knús og kossar,
Sigurborg
Skrifa ummæli
<< Home