sunnudagur, janúar 29, 2006

Tónleikar, þverflauta og skíðabuxur.

Ég ætlaði á íslensku nuit curieuse-hot pots tónleikana sem haldnir voru á Ferme du Buission í Scéne Nationale de Marne-la-Vallée í gærkvöldi eða laugardagskvöldið en hafði verið svo sein að panta miða að allt var uppselt þegar minn hringdi. Systir mín var þó búin að fá miða þar sem góður vinur hennar hafði verið með fyrirhyggju og keypt miða handa sér einn auka! Það voru þó aðrir tónleikar sem mig langaði allaveganna að kíkja á sem voru einnig íslenskir og voru með fyrrum Gus Gus og Nýdönsk söngvaranum Daníel Ágúst og einnig var Kira Kira að spila, en þessir tónleikar voru í 5 min. göngufæri frá minni. Ég skellti mér þangað með samstarfskonu minni og skemmti mér hið konunglega. Tónlistin var róleg hjá báðum. Daniel minnti mig á Johnny Depp í Edward Scissorhands. Þó var hann ekki með nein skæri á höndunum eða með hárið út um allt. Hann var samt kominn með millisítt hár, í svörtum klæðum með stórum hálskraga. Tónlistin hjá honum var mjúk og var hann með strengjakvartett að spila með sér (þau eru víst öll búsett í Belgiu einn af þeim íslendingur)

Ég gerðist sá snillingur að spyrja einn aðilann hvort hann væri ekki íslendingur. Var reyndar að spyrja fy
rir samstarfskonu mína þar sem hún var nokkuð viss um að hún kannaðist við hann frá Selfossi, taldi líklegt að hann væri kennari þar. Ég fer því upp að honum og spyr...hann segir jú jú það er rétt (enda sást það langar leiðir, alveg ekta íslenskt útlit)en ég var ekki gáfaðri en svo að þekkja ekki íslenska sendiherrann í París því þetta var hann!
Auðvitað átti maður að leggja tvo og tvo saman þar sem icelandair og sendiráð íslands í parís styrktu þessa tónleika. En svona er þetta.. alltaf jafn ljóshærð.

Tónleikarnir voru búnir frekar snemma eða rétt eftir 10 um kvöldið og þá var boðið upp á miða á skemmtiatriðin í Marne-la-Vallée, minn ákvað því að skella sér þangað :)

Þar var töluvert fjör, alls konar skemmtiatriði í gangi og heitir pottar út um allt fyrir þá sem vildu :)

Boðið var upp á smá mat á staðnum.. einhver skelfilegur fiskur sem ég er efast um að hafi verið íslenskur! Annars var maður það svangur það var látið sig hafa það að eta matinn.. svona að mestu leyti.

Partýið var svo búið um fjögur og þá var farið í bæinn. Það tók auðvitað klukkutíma og ekki því farið í rúmið fyrr en eftir fimm um morguninn.. sem sagt svona venjulegur tími fyrir íslenskt djamm :)

Ég fór auðvitað að rölta um París á laugardeginum og gerði eins og Biddí vinkona, keypti mér skíðabuxur fyrir alpaferðina mína í mars :D Hvernig er það annars heima.. er ekki snjórinn farinn í fjöllunum?

Ég fór einnig og keypti mér þverflautuna sem mig er búið að langa að kaupa og fékk í jólagjöf frá foreldrum mínum :D Er rosalega ánægð með hana og búin að spila töluvert á hana.. fyrst svona meira að finna allan skalann ehem.. var ekki alveg að muna hvar esin og -isin voru... ég er því búin að vera að ergja nágrannana svolítið.

Annars enn og aftur.. vikan búin að líða ótrúlega fljótt.. Búin að vera að skoða íbúðir þar sem ég þarf á því að halda í byrjun mars. Mér sýnir á öllu að ég fái kannski 20 fm fyrir 650 eur.... og mig langar að vera með allaveganna 40 fm! ég þarf því að leita heldur lengur og aðeins að athuga með budgetið sem og hvar ég vil leigja.. alveg endalaus leit sýnir mér. Looking forward yeahh right!

og já ég veit.. ég þarf að skrifa oftar en einu sinni í viku..

Knús og kossar til ykkar allra.. Það er ekkert smá gaman að fá komment :)

mánudagur, janúar 23, 2006

mp3 spilari :)

Minn búin að kaupa sér eitt stykki :) rífandi stoltur eigandi. Búin að vera að downloada lögum á spilarann og er í þessum orðum að hlusta á "hey kanína" með Sálinni.. brjálað stuð :D Svo er bara að setja inn á þetta frönskukennskuna og þá getur minn hlutast í lestinni á leið til og frá vinnu :)

Ég verð að viðurkenna að mér finnst ekki svo slæmt að ferðast í lest..oft mjög notalegt að þurfa ekki að keyra :) og getur verið að læra, lesa eða hreinlega slakað á!

sunnudagur, janúar 22, 2006

Tvær vikur!

Alltaf finnst mér tíminn líða hraðar og hraðar. Hef víst verið hér í tvær vikur og líður eins og ég hafi rétt í þessu verið að koma.

Síðasta vika leið ótrúlega hratt. Það hefur svo sem ekki mikið gerst. Smakkaði í fyrsta skiptið pule... sem eru litlir kolkrabbar.. alveg skelfilega ljótir og frekar seigir og bragðlausir að auki, en alveg gaman að smakka eitthvað nýtt.

Skemmtileg stemming myndast hjá vinnufélögunum þegar þeir koma saman í hádeginu og elda saman eitthvað gómsætt :)

Ég er líklegast búin að finna mér tungumála vin :) við tölum saman íslensku í smá tíma, návkæmlega ÍSLENSKU, og svo reynum við að babbla eitthvað á frönsku. Maðurinn hefur víst mikinn áhuga á íslandi og íslenskri tungu og hefur lært hana greinilega eitthvað áður.

Annars eru tvennir tónleikar sem mig langar að fara á í augnablikinu. Gus gus er að spila 28. janúar að mig minnir hér í Pigale og svo er Ampop að spila 3. febrúar einnig í París. Held það verði dúndur stemming.

Ég fór afmæli til dóttur vinkonu systur minnar.. alls staðar treður maður sér inn í von um að fá kökur :) Litla rúsínan orðin 3 ára og algjör prinsessa.

Veðrið um helgina var hreint yndislegt! Sól og ferskt loft. Fór að rölta um í skóginum í Vincennes rétt út fyrir París. Greinilegt að nokkrir búa í skóginum, það virðist þó notalegra heldur en að sofa á metro stöðunum eins og margt útigangsfólkið gerir.

Fór út um allt í París á laugardeginum. Fann aveda búðina í París, í 7. hverfi.. svolítið skondið.. ekkert kassakerfi í búðinni heldur skrifaði eldri kona söluna á miða og hvað hvert stykki kostaði og lagði það svo saman í huganum.. og ég hugaði aðeins.. er það hægt ennþá :) skoðaði skíðaföt í 6. hverfi nálægt Sorbonne, búið var að benda mér á að skoða í ákveðinni búð sem sérhæfir sig í fjallafötum svo ég fer þangað í von um að hitta vin minn í búðinni en þegar ég kem þá er þetta ekki aðeins ein búð heldur gzilljón búðir allar með sama nafninu á öllum götuhornum á nokkrum hæðum... garg!!

Skoðaði þverflautur, bæði notaðar og nýjar í tónlistarbúðargötunni eða Rue de Rome. Ég hugsa að ég sé búin að ákveða mig að fá mér Yamaha 281 týpuna af þverflautu.. lítur vel út, virðist sollid og ekki of dýr :)

Byrjuð á 4 seriunni af 24 :) horfi á 1-2 þætti áður en ég fer að sofa.. gríðarlega spennandi. Búin að bíða eftir að sjá seriuna í marga mánuði.

Einnig er ég búin að torga 3 bókum síðan ég kom og þær aðeins lesnar þegar ég er á leiðinni í vinnu eða úr vinnu. Með þessu áframhaldi á ég eftir að lesa rúmlega 60 bækur yfir árið :) helv.. fínt!

Og svo er helgin búin og næsta vika byrjuð..

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Helgin :)

Kvarta ekki. Fékk yndislegt veður yfir helgina, sól og blíða þótt loftið væri svalt.

Stofnaði bankareikning :) nú get ég aftur farið að nota tékkahefti.. jibbí.. mitt uppáhald! Tékkheftið blívar nefninlega í hinu fagra frakklandi. Þetta veður örugglega fínt þegar mér tekst að skrifa ávísanirnar án stórkostlegra villna.

Fór í afmæli á laugardagskvöldið hjá einum tónlistarsnillingnum. Hann vann áhugamannamótið á piano í Frakklandi á árinu 2005. Virðist enginn áhugamaður.. þar sem hann spilar m.a. Rachmaninov eins og að drekka vatn. Hvernig fer fólk að þessu. Hann er með mastersgráðu í verkfræði og hreint út sagt ótrúlegur á pianóið. Ég hustaði á hann í byrjun desember þegar ég kom í viku til Parísar. Hann var þá að æfa sig fyrir tónleikana sem hann átti að verða með þann 15. desember með simfóníuhljómsveitinni. Ég skemmti mér vel við að hlusta á verkin hjá honum. Alveg greinilegt að Celine Dion með laginu "all by myself" stal hluta af einu verkinu hjá Rachmaninov. Er komin í ákveðið hugarástand..nýt þess að hlusta á hverja nótu.. og svo kemur miðkaflinn.. og heilinn byrjar.."all by myself"" c'est horrible!

Afmælið var annars notalegt.. Svona kaffistemming um kvöldið. Allir að rabba saman. Mamman að snúast í kringum alla og bjóða meir. Hún búin að baka og elda heilu tonnin af mat og kökum.

Sunnudagurinn var rólegur.. Fórum í Val d'Europe í outlet búðir þar og mollið.. Allir virtust hafa sömu hugmynd.. þar sem við vorum hálf stopp á leiðinni og hörmungin ein að finna stæði. Hingsóluðum í allaveganna 30 min á bílastæðinu aðeins til að finna eitt slíkt. En ótrúlegt þá tókst mér að kaupa mér gallabuxur sem og sængurföt á rúmið :) minn því ánægður.

@+

föstudagur, janúar 13, 2006

Tónleikar, heita vatnið og þjófar!

Fór á notalega,jass/lyric tónleika í gær þar sem systir mín spilaði svona glæsilega með þremur öðrum. Ein spilar á rafmagnspiano og syngur, einn var á kontrabassa, systa á klarinette og svo annar söngvari. Efast ekki um að ég eigi eftir að sjá þau aftur.

Eins og við íslendingarnir erum vanir getum við tekið sturtu í marga klukkutíma og enn er nóg af heitu vatni. Þessu er ekki alveg eins farið í Frakklandi. Ég fór í mína fyrstu sturtu í nýju íbúðinni og auðvitað kláraðist heita vatnið! Varð að þvo hárið með ísköldu vatni!! Nb. ég var að passa mig, en greinilega ekki nóg..þannig að aðeins 5 min sturta max og þá er þetta í lagi, great!

Alltaf verður maður að passa þann farangur sem maður heldur á sem og sérstaklega gsm símana sína. Var rétt komin inn í lestina í gærkvöldi þegar þrír menn spretta fram hjá mér. Sá fyrsti hélt á síma í hendinni og greinilega að flýja hina sem voru frekar reiðir í framan og öskrandi á eftir honum, svo heyrðist mikill kliður í lestinni þegar allir muldruðu..ahh...le portable og svo hálfgerður hlátur.. hmm..ég get ekki alveg sagt að ég myndi hlæja ef ég myndi missa minn síma.

Ég þarf eitthvað að athuga með stillinguna á klukkunni hjá mér á bloggsíðunni.. ég er ekki að skrifa á nóttunni :)

miðvikudagur, janúar 11, 2006

Utsolur

Thaer byrja nefninlega i dag og allir half vankadir vegna hennar, sumir taka ser fri i vinnunni til ad komast a fyrsta deginum!

Eg aetla ad reyna ad kaupa mer einhverja sko um helgina thar sem eg tok adeins med mer 4 por af skom ut, eg var med nogu ands.. mikinn farangur samt.

og ja.. gleymdi thvi adan.. mundi svo simanumerid hennar systur minnar i hadeginu :) thannig ad thetta er ekki alslaemt og audvitad man eg kodana i vinnunni sem og hja syssu :)

Kodar!

Fer ut a rettum tima ad heiman..anda lettar, sest nidur og byrja ad lesa og tha man eg thad.. shit, gleymdi helv.. simanum heima og minn svo gafadur ad setja memo i simann med hvar eg byggi og BADA kodana til ad komast inn! Eg reyni i orvaentingu ad muna kodana, hvad er aftur fyrir utan sem og til ad komast inn, thvi thott eg se med lykilinn tha dugar hann skammt ef eg man ekki kodana inn um utidyrnar! Heilinn tharf ad byrja ad vinna klukkan rett rumlega sjo um morguninn, gengur eitthvad erfidlega ad muna kodana og tha hugsa eg en hvad med oll numerin, numerid hennar systur minnar t.d.? ekki alveg ad muna that i augnablikinu heldur.. great! jaeja.. get vist litid gert nuna.. lestin logd af stad og eg tharf ad maeta i vinnuna a rettum tima. Svo anda eg lettar, eg nefninlega skrifadi kodana einnig i minnisbokina mina sem eg er med mer, eg kemst thvi heim i kvold :)

Thad eru kodar ut um allt her i paris.. eg er thi ad troda i minnid a mer endalausum tolum. Nyju simanumeri hja mer, kodunum tveimur heima, kodunum tveimur i vinnunni, kodanum hja syssu. Nyjum lykilordum i vinnunni sem og oll nofnin i vinnunni! og svo audvitad ad laera a metro og RER lestarkerfid pronto!

þriðjudagur, janúar 10, 2006

úff.. dagurinn byrjaði með hjartastoppi í allaveganna 1 mínútu þegar einn parísarbúinn fór undir lestina til að ná í eitthvað sem dóttir hans hennti/missti undir lestina og gargaði svo þegar hann ætlaði ekki að ná í hlutinn.. svo hann fór undir lestina og bjargaði pelanum á meðan ég var í hjartastoppi... þar sem lestarnar stoppa ekki svo lengi á hverjum brautarpalli..

Annars er dagurinn ótrúlega fljótur að líða... Vakna kukkan 6:45 til að vera mætt í vinnuna klukkan 9! og svo unnið þar til 18 um daginn og þá tekur rúmlega klukkutíma að koma sér heim aftur..garg..

Keypti mér lestarmiðann vegna ferðarinnar til frönsku alpana :) .. ohh. ég hlakka svo til.... já nei...alveg óþarfi að vera með jólalög á heilanum.

Keypti mér sæng sem og sængurföt í gær..þetta er allt að koma. Er að strauja fötin núna þar sem þau eru ennþá rök og minn alveg að fara að schlafe eða dormir eins og sagt er í a la francinu.

bonne nuit

Og komin til Parísar!

Og ég er komin til Parísar, voila! Nú þarf ég að muna alla frönsku frasana sem ég hef lært um tíðina og gjöra svo vel og nota þá, ekki seinna vænna.

Ferðin gekk vel út fyrir utan að töskurnar mínar týndust í tollinum í heila 3 kvíðarfulla tíma. Við komumst því ekki heim fyrr en seint um daginn.. og þá vorum við systir mín hreinlega búnar á því, ég hálf sofnaði í bílnum á leiðinni og svo láum við báðar eins og skata um kvöldið fyrir framan sjónvarpið og gátum okkur hvergi hreyft.

Laugardagurinn 7. janúar var töluvert skárri. Fórum með allan farangurinn minn í íbúðina sem ég mun hafa næstu tvo mánuði. Alveg ágætisíbúð, c.a. 40 fm og er í Pigale hverfinu :) svona hálf súrealískt að næstum næsta hús við mig er upplýst með stórum stöfum "Sexdrome".. jep svona er aðal gatan í Pigale í hnotskurn.

Alltaf er að koma meira og meira í ljós hverju ég gleymdi heima! Fyrst var það HLEÐSLUTÆKIÐ á tölvunni minni, sem er náttúrulega það versta. Er eiginlega alveg vonlaus án tölvunnar. Fórum á laugardeginum í Fnac til að kaupa eitt slíkt en þar var aðeins til Universal hleðslut. hmmm... jæja.. það ætti alveg að vera í lagi héldum við.. mais.. no! Sony vill ekkert svona Universal drasl.. þannig að nú þarf ég að finna the one and only store sem er að selja varahluti í Sony.. og auðvitað loka allar búir klukkan 19:00 á kvöldin og ég ekki komin úr vinnu fyrr en þá!! lovele..

Vinnan vinnan :) Byrjaði svona rosalega vel. Komst ekki í vinnuna fyrr en 10:30 þrátt fyrir góða viðleitni að minni hálfu að vakna klukkan 6:45. Ég var búin að kortleggja nákvæmlega hvar vinnan er staðsett með vefkorti.. en svo kom í ljós að helv.. kortið er gjörsamlega rangt.. og því mín búin að fara út á rangri lestarstöð sem og ganga heilu kílómetrana. Vinnan er þó alveg í lagi, gott andrúmsloft og allir að vilja gerðir að aðstoða.

to be continued ;)