Pila komin aftur :) og pabbi og mamma komin í útlandið
Já Pila fór víst aðeins í smá göngutúr..var ekkert að átta sig á því að við værum öll með miklar áhyggjur af prinsessunni og því mikið dekstrað við hana þegar hún koma til baka :P...það fyrsta sem verður gert.. ól keypt á orminn..Pabbi og mamma komu svo í dag út og komu með fullt af kræsingum með sér :)...sem og páskaegg :D og ég soddan krakki ennþá er alveg himinlifandi með eggið mitt.
Þau verða hérna í heilar tvær vikur og því yfir páskana sem er hreint alveg fullkomið.
Var svo stolt af sjálfri mér fyrir að hafa tekist að setja mynd á bloggið mitt.. greinlega ekki mjög erfitt núna þar sem ég er komin með picasa forritið...
littla systir mín er að halda eitthvað svaka íslenskt þema kvöld hér í París þann 4. apríl..hlakka til að sjá hvernig fer.. allt búið að vera á fullu út af þessu..varla hægt að spjalla við hana. :)
endilega kíkið á linkinn..og kíkið ef þið komist og eruð í parís :) http://www.myspace.com/heidab3


