Hitabylgja og lokapróf!!!
það er allt of heitt í París þessa stundina. C.a. 35° um eftirmiðdaginn...hvernig á maður að geta lært í þessum hita???? Er að fara að taka lokaprófið í Optimization þann 24. júlí og svo 27. júlí er Probability Theory.. úffff.. er þvílíkt stressuð þessa dagana sem sé.Annars er lífið búið að vera viðburðalítið frekar í júní og júlí.. aðeins læra, læra og vera í skólanum.. Nemendurnir eru frábærir og eldum við saman oft og höfuð það notalegt. Allaf gaman að banka upp á hjá einhverjum og spjalla í smá stund á milli lærdómslota.. stundum verða pásurnar lengri heldur en loturnar :P ehemm..
Þjóðhátíðardagur Frakka var 14. júlí og fórum við nokkur að horfa á flugeldasýninguna hjá Eiffelturninum. Nokkuð flott..en ég verð að viðurkenna að mér finnst flugeldasýningarnar flottari á fróninu :)
Annars hlakka ég til að koma heim í nokkra daga núna í ágúst. kem líklegast um miðjan ágúst og verð í tvær vikur.
verð víst að halda áfram að læra..Skólaumsóknin mín í haust verður ekki að fullu samþykkt fyrr en ég hef náð þessum prófum .. jæks..
A+
