Heimsóknin :D
Einhvernveginn tekst mér að skrifa aðeins vikufréttir. Vikan þýtur framhjá og ég á í erfiðleikum með að fylgja eftir. Annars ætla ég ekki að vera með neinn ljóðaleik, sökka frekar feitt í honum, annað en Ása Marin vinkona mín sem skrifar virkilega skemmtileg ljóð og texta, af hverju fékk minn ekki þessa náðargáfu. Jæja, ég get gert skattframtöl í staðinn :)
Minn á svo yndislega vini. Gunna var svo þvílíkt sæt að koma í heimsókn til minnar í viku. Endalaust gaman að fá hana og minn saknar hennar sárt. Ég fékk endalaust hárfikt og gat sagt "honey I'm home" þegar ég kom þjótandi úr vinnunni. Minn þurfti nefninlega að vinna frá mánudegi til miðvikudags en fékk frí á fimmtudeginum og föstudeginum til þess að skoða París með henni sem og fylgja henni á flugvöllinn :)
Ég sótti hana á Laugardeginum, greyið alveg úrvinda út þreytu. Fór með hana heim til að slaka aðeins á eftir ferðina. Um kvöldið fórum við svo út að borða á grískan veitingastað hjá Saint Michel. Þar vorum við beðnar ítrekað um að dansa fyrir borðgesti og á endanum stóðum við upp og létum okkur hafa það. Teknar voru myndir af okkur bak og fyrir, þar sem líkegast hafði ekki sést svona tvein amazon kvenmenn inni á þeirra stað. Þjónarnir allir virkilega glaðir og dansandi allan tíman og einn starfsmaður í starfi við að dansa í miðjunni. Við fengum vin fyrir hvað við vorum yndislegar að stíga nokkur amazon dansspor. Einnig vildi þjóninn fá okkur næsta kvöld að dansa, við fengjum kaffisopa frítt með :) við þökkuðum auðvitað pent fyrir og sögðum hvert veit!
Við ákváðum að fá okkur ekki desert þarna heldur fara á eitthvert kaffihúsið.
Þegar við báðum þjóninn á kaffihúsinu um desert þá bauð hann okkur sig og það í thong-i :) annar var hann mjög almennilegur og kom okkur oft að skellihlæja með fíflalátunum í sér.
Á sunnudeginum ringri heil ósköp. Við fórum á útimarkað í St. Quain þar sem endalaust var af antíkmunum. Mjög gaman að skoða þetta...en svo sem ekki mikið keypt. Við komum heim um kvöldið alveg dauðuppgefnar og ákváðum að fara á indverskan veitingastað sem er rétt mjög nálægt íbúðinni þar sem ég er í Pigalle. Veitingastaðurinn er mjög flottur og maturinn var rosalega góður. Það skondna var aðeins að ef horft var út þá stóð með stórum stöfum SEXODROME á byggingunni á móti. Ég held ég sé búin að segja það áður en það er alveg krökt af kynlífsbúllum þar sem ég bý í augnablikinu. Við fórum saddar og ánægðar heim um kvöldið og þjónarnir höfðu einnig keppst við að gera okkur ánægðar og vildu endilega fá okkur aftur næsta kvöld.
Mánudag, þriðjudag og miðvikudag var ég að vinna á daginn og fórum við svo út að labba á kvöldin. Reyndum að fara á helstu staðina, Sacre Ceur (og útsýnið yfir París) , Montmartre (listamannahæðin) , Effelturninn, Operuna, Printemps, Gallery Lafiette (og á útsýnispallinn þar uppi á), Champse Elysée og Sigurbogann. Alexander III brúnna. Löbbuðum meðfram Signu og fórum í neðanjarðar mollið á Les Halles. En það er samt alveg fullt sem við náðum ekki að sjá því miður.
Fimmtudagurinn var notaður í að skoða betur Gallery Lafietter sem og Printemps. Við misstum okkur svo alveg í kaupum á frönskum undirfötum, þau eru náttúrulega rosalega flott, algjörir konfektmolar.
Um kvöldið var mikill vilji fyrir að fara frekar fínt út að borða. Hún langaði að bjóða mér eitthvað sætt. Minn auðvitað þvílíkt ánægður með það :) Ég fór því og skoðaði Parísarbókinar mína og við byrjuðum á að hringja í nokkra veitingastaði um klukkan 19 á fimmtudeginu.. og auðvitað voru margir fullpantaðir. En svo var einn með laust borð fyrir tvo, ekkert mál :D Við náttúrulega rosalega ánægðar og gerðum okkur til. Ætluðum að vera komnar þangar klukkan níu um kvöldið. Við vorum rosalega spenntar.. hvernig veitingastaður þetta væri, vorum ekki alveg vissar og hlökkuðum til að sjá hvernig hann væri. Við vissum að hann héti L'espadon og væri með franskri matargerð og frekar dýr.
Við vissum þó ekki að þetta væri á Hótel Ritz .. ehemm..þvílíkur lúksus.. verð að hafa það í sér bloggi :D enda minn búinn að skrifa endalaust.. alveg takmörk fyrir því hvað hver og einn nennir að lesa lengi :)
Icelandair
Alveg stórfurðulegt. Guðrún, vinkona mín sem er að koma á morgun keypti flugmiðann í gær, hún fór fyrst á netið og sá flug á aðeins 23þ ísl. 15 min seinna þegar hún ætlar að kaupa flugið þá er flugmiðinn kominn upp í 33þ eða 40.900 með sköttum. Helv.. helv.. hún hringir í Icelandair og spyr af hverju og þeir segja að allt sé að verða uppselt og því verðið búið að hækka.. Jæja hún lætur sig því hafa það og kaupir miðann! Í dag var ég að kíkja á netið og getið hvað.. flugmiðinn kominn í 20.900 eða 27.900 með sköttum. Auðvitað læt ég Gunnu vita, hún hringir í flugfélagið og við getum gert breytingar sem betur fer, hún fær því flugið á endanum á 27.900 m/sköttum.. fewhh.. :D jæja.. þar sem hún er búin að "græða" svona hellings pening þá getur hún eytt meiru í a la París :) gvööð hvað það verður gaman..
Heimsókn :D
Minn er að fá heimsókn núna um helgina :D jei..ekkert smá gaman.. Vinkona mín ákvað að skella sér í viku til Parísa.. minn alveg hoppandi af gleði núna :D..
Sofandi
Stundum er nú þannig að ég skrifa og skrifa.. svo sem ekkert merkilegt, set það á netið og rétt les það þá yfir! aðeins of seint.. alveg eins og ég sé sofandi í sumum tilfellum.. fullt af typos og stafsetningarvillum, óskipulagðar og illa myndaðar setningar sem og hreinlega málefnalegar villur. Eitt dæmið sé ég blasa fyrir framan mig rétt í þessu. Ég sem sé hef ekki mikinn áhuga á að nálgast "look but don't touch" gæja heldur hina myndarlegu gæjana sem eru á milli :) Ég held þó að flestir viti hvað ég er að rembast við að koma frá mér.. þótt léleg skriffinnska flækist fyrir.
Franskir strákar.
Ein bað mig um að koma með lýsingar á frönskum strákum eða fransbrauðunum. Ég er búin að sjá fullt af myndarlegum strákum og meira að segja nægjanlega háum einnig, en þeir eru annað hvort að hlaupa og ná lestinni eða eru að stíga út úr henni og mín á leiðinni inn :) Ekki bankar maður í öxlina á viðkomandi og gefur honum númerið sitt, eða hvað??.. en svo á hinn boginn ef maður gerir ekkert þá sér maður í 99% tilvika manninn ekki aftur :) Allaveganna dökkhærðir karlmenn með brún augu og vel vaxnir er alveg nóg af hérna úti, flestir þeirra eru í "gay" hlutanum á París.. og því margir "look but don't touch" gæjar. Ég er þó viss um að hægt sé að nálgast einhvern þeirra einn daginn :) Minn fyrrverandi spurði mig fyrir nokkrum dögum hvort ég ætlaði að vera ein á meðan ég væri hérna úti... ehhh.. svolítið skondin spurning.. en ég geri þó ekki ráð fyrir að vera ein í þessi 3-5 ár sem ég verð hérna, þá væri ég alveg mygluð. Enda er búið að skipa mér af fjármálaráðgjafanum hjá fyrirtækinu sem ég er að vinna hjá að fá mér franskan kærasta sem fyrst! Hann var reyndar að hugsa um þetta vegna tungumálakunnáttunnar minnar. Finna mér einhvern franskan sem kann helst enga ensku! Þá verð ég fljótust að læra frönskuna vel segir hann. hmm.. jæja.. ég skoða þetta mál.. Reyndar finnst honum svolítið skondið að ég sé að fara að leigja með manni og spurði mig strax hvort hann væri myndarlegur, var alveg viss um að eitthvað myndi nú gerast á milli okkar. Reyndar minntist minn fyrrverandi á þetta einnig, Ehem.. ég er nú ekki sammála þessu :) enda ætti C. að vita betur en margir aðrir að ekki þarf samband að verða þótt bæði kynin leigja saman!
Íslandsferð :D
Minn er búinn að kaupa sér flugmiða heim. Kem heim 1. apríl og fer aftur út 10. apríl. Hlakka virkilega til :)
Íbúðarheimsóknir
Annars var síðasta vika skemmtileg. Fór í nokkrar heimsóknir yfir vikuna og helgina til að skoða íbúðir. Fór til eins sem var töluvert mikið fyrir utan París, of mikið. Þurfti að ganga í heilar 20 min eftir lestina. Þá kom ég að niðurníttu húsi en ég komst ekki í gegnum hliðið, alveg sama hvernig ég reyndi. Eftir stutta stund kom Bernard út, 55 ára karlmaður, virkar þú miklu eldri, 150 cm á hæð og svipaður á breidd. Hlær mikið og talar látlaust og engin enska. Ég sem sé reyni að bögglast á frönsku og hann babblar og babblar. Sýnir mér húsið, sem lítur ekkert rosalega vel út og herbergið sem ég átti að fá var algjör horror, hann var líklegast eitthvað að vinna í því herbergi, hálft klósett í herberginu og drasl út um allt. Tvær aðrar stúlkur leigja hjá honum og ég hefði verið sú þriðja. Hann bauð mér eitthvað að drekka og sagði einnig að ef ég vildi þá gæti ég sofið þarna um nóttina. Meira að segja mætti ég fara í sturtu líka. Ég þakkaði pent fyrir og sagðist þurfa að fara heim, skipta um föt og svona fyrir morgundaginn.. Hann bauð mér þá að þvo fötin um kvöldið og þurrka þau yfir nóttina.. tíhí.. hann var mjög svolítið skondinn og ljúfur.. Sýndi mér myndir hvernig húsið væri á sumrin umvafið blómum. Ég þakkaði svo pent fyrir og kvaddi.
Ég fór nú einnig í venjulegar heimsóknir, þæginlegir leigjendur en herbergið þá frekar lítið eða aðstaðan ekki nægjanlega góð miðað við verðið. Einn aðilinn var 40. karlmaður. Sýndi ágætis íbúð en sagði svo í endann hann á 2 börn sem koma aðra hvora helgi og svo kærustu sem flytur líklegast inn í apríl!... ehhhh.. takk en nei takk.. Ég er töluvert ánægð með að vera komin með íbúð og þurfa ekki að vinna í þessu mikið meir :)
Ég sem sé mun búa í Pigalle þar sem ég er búin að vera síðan í Janúar, íbúð sem systir mín reddaði mér. Íbúð vinkonu hennar en hún er í Mecixo sem stendur og kemur aftur í byrjun mars.
Ég mun því flytja til systu í byrjun mars í nokkrar vikur áður en ég flyt í nýju íbúðina hjá Adrian.
:)
Komin með íbúð :D
Minn kominn með íbúð og það í miðborg parísar, frábær staðsetning, allt í göngufæri. Mun flytja inn um miðjan mars eða jafnvel í byrjun apríl. Mun leigja með einum myndarlegu gæja :) 27 ára verkfræðingur. Virkar mjög vel á mig, easy going gæi. Hlakka til. Íbúðin er með mikinn sjarma. Viðargólf og fallega skreytt loftið. Herbergið er c.a. 13 fm, alveg ágætisherbergi.
Ég hefði þó getað fengið íbúð í 15. hverfinu á París þ.e. suður Paírs. Sú íbúð er æðisleg, allt nýtt í íbúðinni en heldur langt að fara í allt og frekar leiðinlegar lestarsamgöngur. Mér var því ráðlagt að taka ekki þeirri íbúð. Hefði einnig þurft að skrifa undir ógrynni af pappírum og skuldbinda mig í langan tíma.
Ég ákvað því að taka hinni íbúðinni þótt hún sé ekki alveg eins flott. Hreinlega miklu þæginlegri staðsetning og íbúðin er heldur ekki slæm og leigjandinn virkar góður. Ég er því sátt. Var samt svolítið erfitt að setja Dario (aðilinn sem var með íbúðina í 15. hverfinu) þar sem hann var búinn að eyða tíma í að sannfæra eigandann um að taka mig þótt ég væri ekki með alla nauðsynlega pappíra. Ég átti að fara á fund með henni klukkan 14:30 á laugardaginn síðasta. Ég hafði þá verið að skoða hina íbúðina 40 min. áður og ákvað því með mjög stuttum fyrirvara að taka þá íbúð en ekki íbúðina í 15. hverfi sem beið eftir mér.
Nýr sími, netið og íbúðarmál
Þar sem mínum tókst að tapa símanum sínum síðasta föstudag (líklegast tekinn í lestinni á leiðinni í vinnuna) þá fór mín og keypti sér nýjan síma. Á nú Ericsson 750i sem er bara nokkuð flottur! Þurfti aðeins að greiða fyrir hann 49 EUR en þurfti á sama tíma að festa mig hjá hjá símafyrirtækinu í heil 2 ár! Annars var ég að prufa að hringja í íslenskan síma úr símanum en ekkert gekk :( og líklegast get ég þá ekki sent sms.. þarf líklegast eitthvað að skoða þetta betur!
Thomson (nettengingin mín) hefur ekkert látið sjá sig aftur síðan fyrir rúmlega viku síðan.. Ég er því alveg netlaus heima á kvöldin.. rétt aðeins stelst í lok dagsins að skrifa nokkrar línur.
Ég fékk mér linsur á föstudaginn.. hafði tekið næstum tvær vikur þar sem fyrstu linsurnar sem þeir pöntuðu týndust í fluttningum.. en ég fékk eitt par af linsum til að prufa og fékk þær frítt :D mín getur því ekki kvartað!
Var í gærkvöldi að skoða íbúð sem mér líst rosalega vel á sem og íbúðarleigjandann en hann biður mig um of mikla pappíra því miður.. þarf að hafa tryggingaraðila, aukalega borga 2x leiguna sem tryggingargjald sem og sýna fram á áframhaldandi tryggar tekjur, sem ég hef ekki .. og því eitthvað erfitt að fá eigandann til að samþykkja minn :( ég hélt það yrði auðveldara að leigja hjá einhverjum.. en þeir greinilega biðja líka um mikla pappíra.. alveg rífandi stuð.. jæja.. ég bý þá bara hjá systu næstu árin :)
Bið að heilsa í bili
Síminn, kórtónleikar og fl.
Mér hefur sem sé tekist að tapa símanum mínum. Á föstudaginn setti ég símann í töskuna eins og venjulega, fer í vinnuna en enginn sími í töskunni þegar ég kem í vinnuna.. great! Mér hefur sem sé tekist annað hvort að vera rænd í Metro, sem gerist víst frekar oft eða hreinlega að síminn hafi runnið út töskunni.. humm..helst mindi ég vilja að ég hefði verið svona helv. kaufsk.. Frekar óþæginlegt að vita að ég hafi alls ekki grunað neitt þegar einhver laumast ofan í töskuna hjá mér!
Helgin fór í að athuga íbúðarmál fyrir frá mars-apríl mánuði sem og athuga með síma.
Það er víst alveg heill hellingur af pappírum sem þarf til að fá íbúð á leigu hér í París. Ég þarf að vera með 3 x leiguna í útborguð laun sem og þarf ég að hafa tryggingaraðila sem hefur 4 x leiguna útborguð laun sem og aðrir pappírar. Ég reyndar vissi að þetta yrði erfitt en samt er ég alltaf að vonast að þetta reddist bara :)
Ég ætla að fá mér Sony 750i símann. Þarf að borga 69 EUR fyrir hann og binda mig í tvö ár reyndar hjá símafyrirtækinu. En ég þarf hvort sem er að vera í áskrift, þannig að þetta er ekki svo slæmur díll.
Fór því miður ekki á Ampop tónleikana í föstudaginn! Minn pínu súr út af því. Fórum fyrst á kórtónleika í Sorbonne. Mjög flottur salurinn, var eiginlega meira að horfa á hann heldur en að hlusta á kórinn:) nei svona á gríns þá var hann alveg ágætur. En þar sem tónleikarnir voru búnir klukkan tíu um kvöldið og Ampop tónleikarnir byrjuðu klukkan níu þá héldu sumir að við yrðum of sein þar sem við mindum ekki komast þangað fyrr en eftir ellefu. Það er einhvern veginn allt svona í fyrrikantinum hér úti, ekki eins og heima þar sem djammað er fram eftir nóttu.. Hér þurfa flestir að vera komnir í metro fyrir miðnætti til að komast heim til sín! Það allaveganna endaði svo að við fórum ekki :(
Minn er búinn að skrifa sinn fyrsta tékka hér í Paris :D finnst ég vera orðin svo sjóuð í skriffinnsku heimi frakka. Einnig er ég stoltur eigandi af fyrsta franska launatékkanum jibbí :D .. annars þarf ég eiginlega að skrifa undir samning hjá þeim að ég sé að vinna þarna.. fékk aðeins svona fyrirfram greiðslu sem er heldur verra. Sé að það skiptir víst máli til að fá íbúð!
Afrískt tónlist og fl.
Ég fór á skemmtilegan stað í gærkvöldi þar sem vinur systu var að spila með bandinu sínu. Strákarnir spiluðu allir afríska tónlist á bongótrommur og tvær stúlkur sem sungu og dönsuðu afríska dansa með :) :) þvílík snilld vægast sagt.. Ég er alveg á því að fá mér eina svona trommu..alveg meiriháttar útrás að lemmja á þær :D Ég á alveg eftir að fara á fleiri svona kvöld.
Það var nú samt eins og nokkrir höfðu verið nýkomnir frá Afríku og höfðu aldrei séð ljóshærðar stúlkur áður :)
Annars er minn búinn að vera heima í dag..með hor og slef og skósíða handleggi (hvaðan kemur það eiginlega) Þarf að fara að redda mér einum sem sér um mig í veikindum :)
Ég átti eftir að láta vita að ég er nú stoltur eigandi af frönsku bankakorti! jessory bob og búin að nota það meira að segja tvisvar.. Fyrsta færslan var auðvitað á bar.. hvar annarsstastaðar :) Fékk mér stóran bjór sem kostaði mig heilar 8 EUR!!! dísús.. og Reykjavík var ofar en París yfir dýru borgir heims! Annars er mun ódýrara að kaupa í matinn hér. Stundum finnst mér ég búin að kaupa alveg heilan helling en þarf svo aðeins að borga 30 EUR :)
Mér var gefin afmælis- og jólagjöf um helgina :) Fékk fallega bók um franska hesta. Minn átti alveg ekki von á þessari gjöf og þótti vænt um.
jæja.. orkan víst búin..tími til að fara að sofa :) góða nótt.