föstudagur, mars 24, 2006

21 EME FESTIVAL DES ARTS MARTIAUX

:D jep.. minn er að fara á sýinguna á morgun.. hlakka þvílíkt til... fór meira að segja í "La maison de l'Astonomie" til þess að finna mér smá kíki svo ég sjái betur.. Það verða víst eitthvað um 15 þús. manns að horfa.. held að ég muni ekki sjá neitt rosalega vel uppi í stúkunni. En stemmingin verður þarna :D og svo fæ ég kannski einhvern til að taka þetta upp fyrir mig á Eurosport.. anyone? :D

Ég er búin að vera í einhverju veseni með bankakortið mitt.. Búið að neita borgun í tvö skipti :( maður verður þvílíkt skömmustulegur.. glatað.. minn á alveg nóg af pening á kortinu. Er því búin að fara tvisvar sinnum í bankann.. þeir skilja ekki neitt.. endurnýja bara kortið.. en svo byrjar ballið aftur.. þannig að minn fær nýtt kort eftir 10-15 daga. Annars finnst mér bankakerfið stórskrtítið hérna.. Þarf að borga fyrir allt! Ég vildi aðeins millifæra á annan reikning og það ekki hægt á netinu.. varð að fara í bankann, en nei.. ekki nóg að fara í útibú.. þarf að fara í AÐAL bankann til þess að millifæra og svo kostar þetta víst einhvern slatta. Þeim tókst að láta mig skrifa undir einhvern samning þar sem ég þarf að borga 5 evrur á mánuði til þess að ég geti millifært af reikningnum hjá mér :( sögðu það þetta væri allt saman miklu betra.. ég skildi eiginlega bara "c'est mieux" eða þetta er betra.. og minn skrifaði bara undir :) ljóska!! tíhí.. en svona er þetta víst.. núna get ég allaveganna millifært á netinu.

Ég er svo að fara hitta strák í kvöld en við höfum ætlað að hittast síðan um miðjan janúar. Búið að vera ótrúlega skondið. Hann alltaf eitthvað upptekinn, ég svo að fara í Alpana þegar hann hefur loksins tíma, skiptumst á að hringja á símsvarann hjá hvort öðru. Hann hefur áhuga á að læra íslensku, skrifar hana ótrúlega vel en þarf að æfa sig að tala. Hann er svo tilbúinn að kenna minni frönsku í staðinn :) sjáum til hvernig hann er.. ég veit ekkert um hann annað en að hann er þessi virkilega busy týpa.

miðvikudagur, mars 22, 2006

3. hverfið

Og ég er flutt! :D Búin að vera heilar þrjár nætur og líður rosalega vel. Íbúðin er þvílíkt kosý að mér finnst, svaka mikið lofthæð með ekta frönsku munstri í loftinu.

Adrian, gæinn sem ég bý með, er rosalega fínn. Hann er reyndar í burtu síðan á sunnudaginn. Fór í viku til Egyptalands, þannig að ég hef íbúðina alveg út af fyrir mig :P

Annars eigum við eftir að kaupa sitt lítið af hverju. Gardínustöng fyrir herbergið mitt svo nágrannarnir mínir hafi ekki alveg svona gott útsýni beint á rúmið mitt :) Einnig vantar mig meira ljós í herbergið, skáp og einhverjar litlar hillur. En þetta mun koma hægt og rólega held ég. Það vantar einnig einhverja skápa á baðherbergið, annars er það frekar stórt og fínt.

Ég hætti í vinnunni á föstudaginn og hef því þessa og næstu viku í svona ágætri slökun. Þarf reyndar að klára tvær skýrslur fyrir vinnuna, skattframtalið er víst einnig eftir sem og bókhaldið og ársreikningurinn fyrir taekwondosambandið þarf að klárast helst a.s.a.p. allaveganna áður en ég kem til íslands þar sem ársþingið er þann 5. apríl.

Síustu þrjá daga hef ég slakað rosalega vel á :D verið að lesa og elda mér góðan mat.. Aðeins farið í göngutúra í hverfinu. Keypti mér rosalega fallega ábreiðu á nýja svefnsófann minn.. sem mér finnst bara ferlega finn, þótt hann hafi ekki verið dýr :)

Ég ætla að hafa smá innflutningspartý (crémaillère) 15.apríl :) og þið eruð auðvitað öll velkomin!

Annar hlakka ég ekkert smá til að koma heim í nokkra daga. Aðeins ein og hálf vika þangað til :D

Sjáumst fljótlega :D

mánudagur, mars 13, 2006

Alparnir

Algjör snilld :) Ég er alveg endurnærð eftir viku í Ölpunum. Alveg frábær snjór og endalaust skemmtilegar skíðaleiðir. Ég hélt að ég myndi nú ekki vera á erfiðustu eða svörtu leiðunum, taldi að þær væru nú allt of erfiðar fyrir minn.. en ég held nú ekki :) Farið var í eins margar svartar og við mögulega gátum, fórum út fyrir leiðirnar, inni á milli trjáa og rembdumst við að skíða í púðursnjónum, algjört ævintýri! Á kvöldin var svo notið þess að borða góðan mat, fara í sánu og hammam sem kælt sig eftir á í sundi. Spilað var oft langt eftir kvöldi og sofið vel fyrir næsta dag :D

Frederic, gæi frá Marceille, vaknaði svo alltaf eldsnemma til að fara og kaupa nýbakað bagget brauð og croissant... humm

Rauða skíðaúlpan og flíspeysan góða sem yndislegu vinnufélagarnir mínir gáfu mér í kveðjugjöf kom að góðum notum í fjöllunum. Ég á eftir að vinna í myndasíðunni, en mun setja þangað einhverjar skemmtilegar myndir úr ferðinni innan nokkurra vikna.

Þessi vika fer í að flytja í íbúðina hjá Adrian :) var að kaupa mér sófarúm í gær í Ikea, ekki alveg flottasta rúmið sem ég gat fengið en nægjanlega fínt til að byrja með. Einnig ætla nokkrir í vinnunni að fara í keilu á miðvikudagskvöldið, held það verði rosalega skemmtilegt, ekki spurning að það þurfi að rífa aðeins stemminguna upp hérna.

Bið að heilsa í bili

miðvikudagur, mars 01, 2006

1. mars

Yndislegt veður í dag. Ég horfi á fagurt landslagið á leiðinni í vinnuna. Kalt en sólin skín og smá fönn á jörðinni. Dagurinn byrjaðiheldur brösulega, allir að kaupa lestarmiða á sama tíma í morgun og því löööööng bið og ég því aðeins of sein í vinnuna.
Stíg ég inn á skrifstofuna og það er eins og hægt sé að skera í gegnum andrúmsloftið með hníf.. Það var verið að segja upp starfsmönnum í Marseille í gær og það sama að gerast hér á bæ í dag. Búið að segja upp 5 starfsmönnum og meira á eftir að vera tilkynnt seinna í mánuðinum líklegast. Allir því með tárin í augunum.

Ég verð svo að flytja allt hafurstaskið mitt í kvöld til systu og C. Alveg rífandi stuð... en svo auðvitað hlakka ég alveg rosalega til að fara í Alpana eftir aðeins 4 daga :D dataradara...og svo aftur að flytja hafurstaskið mitt í nýju íbúðina hjá Adrian þann 15. mars.. Þá verð ég með internetið í lagi :D og síðasta vikan í vinnunni.. Allt að gerast!