þriðjudagur, ágúst 15, 2006

Vonlaus penni!

Jamm..veit upp á mig skömmina :s Ekkert hægt að stóla á að ég uppfæri bloggið hjá minni á nokkurra daga fresi.. eða jafnvel vikufresti... ehemm..það er svona meira mánuður hjá minni..

Prófin búin.. komin inn í skólann í haust :p .. jibbíí.. og búin að fá út út prófinum, frékk reyndar að vita að ég væri samþykkt inn í prógrammið áður en ég tók lokaprófin.. sem létti aðeins hjartanu.. náði prófunum .. ouf..

Flutti svo enn og aftur.. nú af dorminu og aftur til systu... fór svo í viku bakpokaferðalag á Brittaniuskagann.. Fór á Celtic hátíð í Lorient svo að skoða bæina í kring.. Quimper, Concourneau og Bernedet. Þvílíkt fallegir bæir og hef ég ekki komið á marga betri staði en á ströndina og tjaldstæðið í Bernedet. Borgaði 10 Eur á dag fyrir tjaldstæðið og aðgang að surtu og hreinsiaðstöðu, bókasafni og fríu wifi svæði, squass var leikið á hverjum degi í þá þrjá daga sem ég var þar. ströndin hrein og engin sölumennska á ströndinni :) sjórinn notalega kaldur og hægt að synda á pínulitla hálfgerða eyju og njóta. Þetta var því yndisleg vika í alla staði.

ER að pakka í dag :P á leiðinni á frónið.. jibbí... hlakka til að sjá ykkur.

ég vona að þið hafið fyrirgefið minni fyrir að hafa ekki skrifað bréf í allt sumar.. alveg vonlaus.. og lítið um nettengingar því miður..sem og svo eitthvað töluvert að gera í skólanum. Allaveganna.. reyni að bæta upp fyrir það með kossum og knúsum þegar ég kem heim.

sjáumst fljótlega :D

a bientôt mon amies