föstudagur, september 29, 2006

Mad World

Er búin að hlusta á lagið Mad World eftir Michael Andrews(feat. Gary Jules)svona 100 sinnum í kvöld. Hef það notalegt og er að læra Probability..Svaka stuð :)

Annars er mánuðurinn búinn að líða rosalega hratt..miðsannarpróf í einu faginu eftir viku :s .. mikil tilhlökkun hér á bæ. Fjármál hafa ekki ennþá byrjað því miður..erum því búin að missa af þremur vikum með fjármálum og því verður þetta mjöööög þjappað þegar kúrsinn byrjar þar sem aukatímum verður troðið endalaust í stundaskránna!!! En ég vil alls ekki missa af þessum kúrs þar sem aðaltilgangurinn var að taka fjármálakúrsana.

Hef eins og ég hef áður sagt yndislegt útsýni.. þar á meðal er effelturninn sem blikkar fyrir mig á klukkutímafresti í 10 mín. á hverjum klukkutíma :) svaka rómó..

Nemendurnir eru rosalega fínir..margir stærðfræðisnillingar.. úff..ein með Phd. í stærðfræði, tveir með mastersgráðu í stærðfræði.. og svo erum við 4 sem erum með litla sem enga stærðfræðimenntun.. sem er alveg rosalega erfitt í þessu námi.. but..við lærum þá aðeins meira. Mórallinn er góður.. höfum borðað nokkuð oft saman.. annað hvort eldum við saman eða borðum í mötuneytinu, sem kostar aðeins 2,75 Eur.. ekki slæmt :) Ég hafði þó rétt fyrir mér því miður þegar ég taldi að ég yrði með heldur ungum krökkum.. þau eru nokkur sem eru aðeins 21 að verða 22..smá aldursmunur :P og þau alltaf tilbúin að fara út og skemmta sér.. meðan ég vil oftast vera heima og slaka á :P ohhwell..erum samt nokkur að fara í salsatíma á morgun :) he he..verður gaman að sjá..

Annars held ég að ef ég vill þá get ég lært alveg heilan helling.. þau eru nokkur búin að bjóða mér að aðstoða mig hvenær sem er.. meira að segja Galia, sem er með Phd. í stærðfræði.. hún vill endilega aðstoða mig hvenær sem ég vil.. er einnig búin að bjóða mér í hádegismat á morgun.

Annars er mjög áhugaverðir nemendurnir. Þeir eru að koma frá öllum heimshornum. Frá Nigeriu, Kóreyu, Líbanon, Argentina, Ítalíu, Kanada, Madagaskar, USA/Rómaníu, Túní og Úkraínu.. sem og auðvitað ykkar ástkæra Ísland :P . Við erum einnig í kúrsum með QEM prógramminu, en þar eru Inverjar, Kínverjar, Georgia og fl. Allir með sinn kúltúr og trú.. Imen frá Túnis er t.d. múslimi og það er Ramada núna...frá 23. sept til 23. okt. Greyið hugsar því ekki um neitt annað en að hafa kvöldmatinn tilbúinn á slaginu 20:00 því hún auðvitað búin að fasta frá fimm um morgunin, fengið hvorki vott né þurrt á þessum tíma.

Tími til að fara að lúlla líklegast..

Bið að heilsa í bili :)

mánudagur, september 11, 2006

Ok yfirlestur

Stundum les ég yfir bloggin hjá mér rétt eftir að ég er búin að uppfæra það.. og endalausar villur!...ups.. ég vona að þið fyrirgefið mér.. ég skrifa heldur hratt og í belg og biðu oft svo ég komist í rúmið sem fyrst :P

À la prochain mon amis

sunnudagur, september 10, 2006

La premier jour d'école

Eða fyrsti skóladagurinn er á morgun..Ballið sem sé byrjað.. og hvað eru nemendur sem eru með mastersgráður og doctorsgráður að villast í programmið hjá okkur ..gargg. gerir þetta þeim mun erfiðara fyrir okkur hin.. ohh..well. Alveg ótrúlega mikið um að nemendur séu með eina, tvær eða eru jafnvel að fá síða þriðju mastersgráðu... eða að byrja á mastersgráðu þegar þeir hafa nú þegar doctorsgráður.. ég ekki alveg skilja stundum.

Annars erum við 10 nemendur sem verðum í MMEF prógramminu.. Áttum að vera 11 en eitthvert vandamál með visa's hjá einum nemendanum. Frakkarnir víst eitthvað erfiðir að gera visað.. hef þó heyrt að Þjóðverjarnir séu erfiðari.. búið að vera vandamál með einhverja 7-8 visa hjá nemendunum í QEM prógramminu en þeir hafa allir styrk frá EU og ættu því ekki að vera í vandræðum með að sjá fyrir sér.

ÉG þurfti eftir allt saman ekkert að taka frönskuprófið.. var aðeins fær upp um bekk síðan í sumar og byrja á morgun. Fæ heila 100 klukkutíma í frönsku fyrir jólin..eins gott að ég nýti það vel og verði sleip í frönskunni um jólin :P

Helgin er búin að vera rosalega fín. Yndislegt veður búið að vera um helgina og því spásserað um París eða slakað á á bökkum Signu. I kvöld vörum við um 7 nemendur sem elduðum okkur og borðuðum snillar máltíð svona sitt lítið af hverju.. smá steiktar pulsur, creps með osti, núðlur, sallar, Cedré og bjór.. sem og toufu desert með almond bragði..nokkuð gott :) og svo var notað allskonar áhöld til að borða á.. t.d. pottlok eða lok af skál.. því ekki á einn nemandi nægilega marga diska, gaffla, hnífa eða skeiðar fyrir alla :P en það gerir ekkert til. Allir ánægðir.´

Ég er núna komin á dormið mitt, sönn mjööög þreytt og alveg kominn háttatími.

knús og kossar

miðvikudagur, september 06, 2006

Þvottavélar!

Alveg ótrúlegt.. tvær þvottavélar fyrir 180 nemendur sem búa á dorminu....frekar lélegt vægast sagt.. ÉG er sem sé búin að bíða núna í 1 1/2 tíma eftir og svo bíða í 30 mín eftir þurrkaranum. og ég á eftir að bíða í klukkutíma eftir að þurrkarinn ljúki sér...og ég er alveg drulluþreytt í augnablikinu... damn damn damn...

Frönskupróf í fyrramálið..great.. annars er þetta aðeins stöðupróf..sjá á hvaða leveli ég er á. Hefði alveg viljað AÐEINS læra...but owell..

Fór í 1 klukkutíma siglingu með MMEF og QEM programinu á Signu. Yndislegt veður til að vera á ánni..annars allt of heitt í dag og mikil sól...ouf..þvílík orka sem fer í að gera ekki neitt.

Jean Sarrailh

Hérna mun ég búa næstu 10 mánuðina :) Herbergið er lítið, 14 fm, en snyrtilegt og innifalið er háhraða internettenging sem og hægt að fá símalínu og tengja sjónvarp... einnig er í herberginu baðherbergi með sturtu og lítið eldhús.. sem sé allt til staðar í herberginu :) Sjá meðfylgjandi tengil.. Þetta eru einnig höfuðstöðvar Crous, en það er fyrirtæki sem sér um aðstöðu, störf, félagsstörf og fl. fyrir nemendur.

http://www.crous-paris.fr/logement/index.asp?sr0=3&sr1=1&sr2=14

Útsýnið er heldur ekki af verri endanum:)Ég sé út í Luxemburgargarðinn og tignarlegur Effelturninn gnæfir yfir glitrar hann í 10 mín á hverjum klukkutíma á kvöldin :)

Þessi vika er búin að fara í að koma sér fyrir á dorminu, þveglar og ruslafötur, skóladót sem og pappírsvinna vegna skólans og stúdentakortsins. Þarf ég að fara í læknisskoðun til að hægt sé að meta hvort ég sé fær um að búa á dorminu :P..sem sé 20 Eur aðeins til að fá stimpil frá lækninum um að ég sé nokkuð heil.

Ég hef verið að vinna í því að setja upp myndaalbúm á netinu..það allt saman að ganga upp..nema hvað ég finn engar myndir frá apríl 2005, þ.e. eftir að ég keypti mér myndavélina í USA..einhvernveginn hafa þær myndir farið með tölvunni minni þegar brotist var inn í maí,
Ég finn engan veginn backupið af þessum myndum :(

Allaveganna...ég reyni að koma myndunum upp sem ég er með og sendi ykkur link vonandi fljótlega :P

Bið að heilsa í bili.. þar sem ég er með internettenginu hef ég ekki mikla afsökun til að setja ekki smá komment af og til :P

Jæja.. mín er sem sé ánægð, eða ÉG er ánægð :P (Ég hef tekið ábendinu frá fjölskyldumeðlimi um að ég noti allt of mikið af MÍN hitt og MÍN þetta) :P

Á bientôt mon amis